Fyrstu fréttirnar af okkur í þessu fína húsi á Grandaveginum.

Fórum í hópferð til dýralæknisins í gær; ég, börnin þrjú, Trítla og Kisa sem þá var nafnlaus. Dýralæknirinn var snögg að kyngreina kisu og eftir að heim var komið hofst langt og erfitt ferli við nafnaleit á dömuna. Fyrst var stungið upp á einum 30 nöfnum og svo fengu allir að gefa einhverjum fimm nöfnum stig frá 1 upp í 5. Eftir það voru stigin lögð saman og fimm vinsælustu nöfnin valin. Þeim voru svo gefin stig frá 1 upp í 3 og að lokum var nafnið Ronja valið.
Ætla að reyna að setja inn nokkrar myndir.