Innstidalur
Við vorum hálf löt allan laugardaginn, vorum bara að stússast í þvottum og tiltekt heima við fram eftir degi. Veðrið var hins vegar svo frábært að við vorum orðin ansi óróleg seinni part dags að komast eitthvert út auk þess sem Signý sótti það mjög fast að fá að labba af stað með nýja bakpokann sinn í alvöru ferð.
Þó að langt væri liðið á daginn ákváðum við því að drífa okkur af stað í útilegu, en eftir flutningana í vetur er hins vegar svo mikið óskipulag á útilegugræjunum okkar þannig að við urðum að byrja á að keyra í Forsæti og finna svefnpoka og dýnur.
Keyrðum svo til baka yfir heiðina og lögðum af stað frá skíðaskála Víkings í Sleggjubeinsskarði kl. 23 á laugardagskvöldið. Þykk þoka lá yfir svæðinu en við fylgdum “bláu stikunum”.
Fylgdum þá rauðum læk í vesturátt þar til við komum inn að fallegu gili þar sem við tjölduðum og fengum okkur heitt kakó og samloku fyrir svefninn.Vöknuðum í æðislegu veðri á sunnudagsmorgninum og fórum í morgungöngu upp á Húsmúla og þaðan eggjarnar upp á Hengilinn. Fórum ekki alla leið á Skeggja, en fengum samt stórkostlegt útsýni. Tókum svo saman tjaldið og gengum sömu leið til baka og vorum komin að Víkingsskála kl. ca. 14 eftir um 45 mín göngu.
Nú er bara að skipuleggja hvaða ferð á að fara um næstu helgi ;-)
Lóla, Rúnar og fjölskyldur komu líka í mat og náðu stelpurnar allar strax mjög vel saman. Eftir útileiki fram undir miðnætti fengu Snæfríður, Wilma og Althea svo að gista hjá okkur, en María Katrín fór heim með pabba sínum. Þetta var virkilega skemmtileg heimsókn en þægilegri gesti þau en Helenu, Staffan og dæturnar ásamt uppáhalds systkinum mínum og þeirra frábæru fjölskyldum er vart hægt að hugsa sér.

Fljótlega tóku krakkarnir að leiða gönguna og var rétt svo að þau fengjust til að taka umsamið hádegisstopp. Það hafðist þó og kl. 12:15 var áð efst uppi á Sandhryggnum með útsýni niður í Brynjudal. Eftir mat tók hluti hópsins smá útúrdúr rétt áður en komið var að Sandvatni niður að Skorhagafossi, en börnin gengu áfram beinustu leið og léku sér við Sandvatn á meðan. Stikluðum Súluá (sumir óðu ;-) og tókum svo stutta nestispásu stuttu eftir ármót Súluár og Öxarár. Komum í Hrútagil ca. kl. 16:15 þar sem var grillað og rútan beið eftir okkur. Frábært veður alla leiðina, stuttbuxur allan daginn en í og úr peysunum. Leiðindafluga stærstan hluta leiðarinnar, en flugnanetin redduðu því og allir komu þreyttir en ánægðir til byggða.
