26. nóvember 2007

Urriðafossvirkjun


Ég hef alltaf verið mikill virkjanasinni. Verið ánægður með allar þær vatnsaflsvirkjanir sem byggðar hafa verið á hálendinu undanfarna áratugi. Sumarið 2005, fórum við fjölskyldan í ferðalag austur að Kárahnjúkum til að skoða stífluna sem þá var í byggingu. Þá þegar hafði ég verulegar efasemdir um að virkjunin væri það mikilvæg að fórna bæri þessari náttúru sem færi undir lón. Við byrjuðum á að stansa í upplýsingamiðstöð virkjunarinnar í Végarði, en þar var mjög gott yfirlitskort af svæðinu í þrívídd. Börnin fengu litabækur og blöðrur og voru algerlega sannfærð um nauðsyn þess að fá virkjun á þennan stað.
Það er bannað að merkja textann !
Áfram var haldið og það var sérlega gott veður þegar við komum á útsýnisstað virkjunarinnar, á Sandfelli. Þaðan sást vel yfir framkvæmdarsvæðið og góðar skýringarmyndir blöstu við. Smíði stíflunar var langt komin en Jökulsá á Dal rann enn óhindruð sína leið.
Neðar við ána, höfðu mótmælendur komið sér fyrir. Við gengum til þeirra og fengum útskýringar og bæklinga, þar sem þeirra sýn á málið kom fram. Tjaldbúðir þeirra voru á einstaklega fallegum stað uppi í hlíðinni gegnt Sauðárfossi. Þegar við útskýrðum fyrir börnunum að allt það svæði þar sem við stóðum á, myndi fara á kaf, þá rann á þau tvær grímur.
f
Það sem fyrir augu okkar bar var í engu samræmi við það sem Landsvirkjun hafði haldið fram. Svæðið var meira og minna gróið og sérlega fallegt. Vissulega má segja að vitneskjan um að svæðið myndi hverfa, hafi gert það á einhvern hátt dýrmætara og sérstæðara. Ég sannfærðist á þessum stað um að þetta væri ekki þess virði. Sumir myndu eflaust segja að þetta væri einfaldlega barnalegt og má vera að það sé rétt. Þetta voru engu að síður mín viðbrögð. Þessu landi mátti ekki fórna fyrir þau megavött sem voru í boði, fyrir það álver sem átti að rísa, fyrir þann gífurlega hagvöxt sem við landsmenn myndu fá, fyrir þá auknu hamingju sem þessi virkjun átti að færa okkur. Eða hvað ?
f
Langt er síðan hugmyndir um Urriðafossvirkjun komu fram og má segja að virkjunin sé eðlilegt framhald af þeim virkjunum sem eru ofar í ánni. Með Holta-, Hvamms og Urriðafossvirkjunum má segja að Þjórsáin sé nánast orðin fullvirkjuð. Sem kunnugt er þá hafa þó nokkrar deilur staðið um þessar virkjanir. Ég hef verið einlæglega á móti Urriðafossvirkjun, bæði vegna þess að með henni hverfur fossinn, en einnig vegna þeirrar áhættu sem hún hefur í för með sér. Fjölmargt fleira mætti tína til sem ókosti, en ekki verður farið nánar útí það hér.
f
Nú hefur verið kynnt ófullgert áhættumat fyrir virkjunina. Ljóst er að áhættan af stíflurofi er mun minni en menn gerðu sér í hugarlund. Þetta eru góðar fréttir fyrir virkjunarsinna og ættu einnig að vera góðar fréttir fyrir þá sem ekki vilja virkja. Það er hinsvegar svo að í því stríði sem nú er háð um Urriðafossvirkjun, þá er allt notað og erfitt að átta sig á hvað er rétt og rangt.
Ég sagði ekki merkja textann....
Sveitastjórn Flóahrepps hefur nú samþykkt að setja virkjunina inn á skipulag. Það kom í sjálfu sér ekki á óvart, en þó átti ég ekki von á að það yrði einróma. Sem fyrrum íbúi í Villingaholtshreppi, þá hef ég fylgst nokkuð með störfum hinnar nýju sameinuðu sveitarstjórnar.
Vinnubrögð þeirra eru fagleg og upplýsingagjöf til íbúða er góð. Þó svo að Landsvirkjun hafi komið fram með mjög sérstæðum hætti í þessu máli þá hef ég enga ástæðu til að ætla annað en að sveitarstjórnin hafi tekið þessa ákvörðun með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi.
f
Ég er og mun áfram vera á móti Urriðafossvirkjun einfaldlega vegna þess að ég held að hún muni ekki gera líf okkar neitt betra.
Landsvirkjun ætti að einkavæða. Einkafyrirtæki fengi aldrei að haga sér með þeim hætti sem þeir hafa gert . Það virðist vera að ríkið gangi í sumum tilfellum mun harðara fram í ýmsum málum en eðlilegt má telja, samanber þjóðlendukröfurnar.
f
Það er hollt og gott að takast á um málefni. Þau átök mega þó aldrei verða til þess að menn persónugeri hlutina og láti það valda illindum eða kljúfi Flóahrepp í fylkingar. Virkjunin er ekki þess virði.
f
SÓL.

21. nóvember 2007

Silfurverðlaun í boðhlaupi

Miðvikudaginn 24. október fór fram Grunnskólamót Reykjavíkur í frjálsum íþróttum fyrir 5. bekk. Keppt var í 60m hlaupi, 600m hlaupi, langstökki, kúluvarpi og 5x60m boðhlaupi. Signý og vinkonur hennar drifu sig á mótið, og þær sáu ekki eftir því þar sem mótið var hið skemmtilegasta og uppskeran góð.
Signý var í frækinni boðhlaupssveit Grandaskóla sem fékk silfrið.

Lið Grandaskóla náði 2. sæti í stigakeppni grunnskólamótsins.

16. nóvember 2007

Í tilefni af degi íslenskrar tungu og 200 ára afmæli Jónasar þá finnst mér þetta við hæfi

Ég er því miður ekki ennþá komin með nægan þroska til að kunna almennilega að meta kveðskap Jónasar, en ég hef hins vegar, eins og Amma, afskaplega gaman af þessari sögu.

Þegar drottningin á Englandi fór í orlof sitt

14. nóvember 2007

Astrid Lindgren 100 ára í dag

Þó það sé nú alls ekki meiningin að þetta sé eitthvert voðalegt bókablogg þá bara verð ég að koma þessu að.
Að sjálfsögðu mun Grandavegurinn lesa nokkrar vel valdar bækur eftir Astrid Lindgren í dag. Af nógu er að taka.

Í viðtali við Sigþrúði Gunnarsdóttur (sem vinnur m.a. við að gefa út bækur Lindgren Íslandi) í Fréttablaðinu í dag kemur fram að til standi að endurútgefa bækurnar um Madditt og Betu. Ég fagna því og verð mætt með svefnpokann í röð fyrir utan Mál og Menningu til að kaupa fyrsta eintakið.

Mikið öfundaði ég Lólu af þessum bókum.

13. nóvember 2007

Signý skátastúlka

Fann þessa mynd af Signýju á netinu hjá Ægisbúum, en hún er tekin í vígsluútilegunni í byrjun október.
Skátaútilega númer tvö var núna um síðustu helgi. Næst á dagskránni hjá sveitinni hennar, sem heitir Hafmeyjar, er Sovét í skátaheimilinu einhverja nótt í desember.
Fyrir þá sem ekki skilja skátalingó: Hint: Það er mikið étið og eitthvað sofið í Sovétinu.

Í húsi Júlíu

Fékk þessa bók eftir Fríðu Á Sigurðardóttur lánaða í Mánahlíð og las í vetrarfríinu.
Veit ekki hvort ég á að mæla með henni eða ekki. Að mörgu leiti var þetta góð bók. Frásagnarstíllinn er “bældur” og margt látið ósagt – skv. prinsippinu “Af því þekkjast góðar sögur að geta verður í eyður,” eins og Júlía segir snemma í bókinni.
Mér finnst hins vegar eins og þessi stíll verði amk. á köflum svolítið sundurlaus og ruglingslegur. Oft flýtur textinn einhvern veginn milli draums og vöku (en það hafði þau áhrif á mig að ég var stundum alveg að sofna við lesturinn).
Bókin fjallar um Júlíu, konu sem er föst í hlutverki sínu sem mamma/amma gegn vilja sínum (eða ekki ...?). Bælingin og þögnin koma vel fram í þessu sjónarmiði Júlíu: “Aldrei að sjokkera börn sín með eigin draumum” Finnst þetta snilldar setning. Þrátt fyrir klisjukennt viðfangsefni er sagan alls ekki klisjukennd því Júlía er miklu margslungnari en svo að vera bara píslarvottur.
Endann vantar á söguna. Júlía er sátt við það, en skrásetjari ekki en “Hvað getur skrásetjari annað gert þegar söguhetjan labbar sig út úr sögunni?”
Ég verð að vera sammála Júlíu, sagan þarf ekkert nauðsynlega á endi að halda því sagan sem slík skiptir í raun engu máli, heldur sjálf frásögnin.
Jú, kannski ég mæli með henni, og þó ... ?
Þið sem hafið lesið bókina – hvað fannst ykkur ?
Myndin er tekin sumarið 2006 í TerraMítica

9. nóvember 2007

Píanóið er nú stillt

Fengum loksins píanóstillingamann í heimsókn til okkar – en píanóið er búið að vera frekar falskt síðan eftir flutningana fyrir ári síðan.
Stefán Birkisson hjá Píanóþjónustunni ehf. http://notendur.mi.is/smh/piano/stillingar.htm kom til okkar og það kom náttúrulega í ljós að hann er sérstakur píanóhirðstillir Forsætisættarinnar ;-) Hann bað að heilsa.
Nú er aldeilis hægt að fara að æfa jólalögin.

8. nóvember 2007

Þórdís og Signý á Selfossi

Helgin 28.-29. október var líka helguð körfuboltanum, en þá kepptu 12 ára stelpurnar í 7.flokki KR sína fyrstu umferð í Íslandsmótinu. Farið var á Selfoss og keppt bæði laugardag og sunnudag. Signý fór líka með í þetta mót, og er greinilega orðin lykilmanneskja í flestum yngriflokkum KR. Systurnar stóðu sig báðar vel og áttu stóran hluta af körfum liðsins.
Þórdís í vörn á móti Selfossi - en sú sem er með boltann var án efa besta körfuboltastelpan á mótinu.
Þórdís tekur skot á körfuna
Hérna er frétt um mótið á heimasíðu KR.

Signý á ferð og flugi

Helgina 20.-21. október stóð Signý í stórræðum í körfuboltanum. MB10 ára drengja keppti þá sína fyrstu umferð í Íslandsmótinu og voru leikir bæði á laugardag og sunnudag. Rétt fyrir helgina barst hins vegar neyðarkall frá MB11 ára stúlkna og tóku nokkrar vaskar 10 ára hetjur að sér að fullmanna liðið. Eldsnemma á laugardagsmorginum lögðu þessar 10 stelpur svo af stað til Stykkishólms í stórum bíl. Mótið gekk vel og náðu stúlkurnar að tryggja sér stæti í A-riðli í næstu umferð og voru þreyttar og ánægðar þegar heim var komið seint á laugardagskvöldinu. Á sunnudeginum fór Signý svo í Garðabæinn og keppti þar með strákunum og enduðu þau í eftsta sæti A-riðils. Mikil sigurhelgi hjá okkar dömu.

7. nóvember 2007

Jósefína og Húgó

Höfum verið að lesa Jósefínubækurnar eftir Maríu Gripe undanfarið. Hef lesið svona kafla og kafla fyrir krakkana á kvöldin en svo tókum við þetta af meiri krafti í vetrarfríinu og kúrðum okkur uppi í rúmi á morgnana og lásum nokkra kafla í einu.
Mæli með að allir rifji upp þessar bækur með börnunum sínum (eða án þeirra - þær standa sko líka alveg fyrir sínu í fullorðinsheiminum).

Maria Gripe, sem er nýlega látin, skrifaði 36 bækur sem voru þýddar á fjölmörg tungumál og er talin með afkastamestu rithöfundum Svíþjóðar. Ætli ég fái ekki Elvis bækurnar lánaðar á bókasafninu næst til að lesa.

Frídagar

Vetrarfríið á Grandaveginum var óvenjulega ljúft í ár - ástæðan er náttúrulega sú að í fyrsta skipti í sögu vetrarfríanna gáfum við skít í vinnuna og tókum frí með krökkunum.
Við byrjuðum fríið á að fara norður í sæluna í Mánahlíð. Þar voru dýrindis máltíðir á hverjum degi og öll aðstaða eins og á fimm stjörnu hóteli (krakkarnir dreifðu meira að segja svo vel úr sér um húsið að þau voru öll í sérherbergjum ...) og Stefán frændi bjó til snjókall með systkinunum og spilaði við þau bæði Íslandsspilið og ægilega skemmtilegt leir-spil sem við keyptum.
Við fórum líka í leikhús og sáum Óvita. Við gefum leikritinu okkar allra bestu dóma. Krakkarnir skemmtu sér vel og mamman var í "sjokki" út af beittri ádeilunni - man ekki eftir að ádeilan hafi verið svona beitt í gamladaga þegar ég las bókina og sá leikritið í sjónvarpinu - en það er auðvitað af því að nú er verið að deila á mig .... Guðrún Helgadóttir er náttúrulega snillingur, nýja tónlistin er vel heppnuð og leikararnir stórir og smáir standa sig með miklum sóma.

6. nóvember 2007

Ronja er komin heim

heil á húfi. Hún hefur greinilega einhversstaðar fengið að borða því hún er vel haldin.
Það voru miklir fagnaðarfundir þegar við komum að norðan og Ronja tók á móti okkur á tröppunum. Það var knúsað langt fram á nótt og hún passaði upp á að sofa eitthvað í öllum rúmum heimilisins um nóttina.

2. nóvember 2007

Ronja týnd !

Litla kisan okkar hún Ronja er týnd.
Hún fór út síðastliðinn sunnudag og kom ekki heim aftur.
Við erum öll mjög sorgmædd yfir þessu, enda er Ronja einstaklega skemmtilegur og góður köttur. Við auglýstum eftir henni á Kattholti og vonandi finnst hún eða skilar sér sem allra fyrst.
http://www.kattholt.is/displayer.asp?Page=21&FAQ_type=Flokkur&p=ASP\Pg21.asp