26. janúar 2007

Reykjavíkurmeistarar

Signý og Þórdís urðu um helgina Reykjavíkurmeistarar í köfubolta ásamt félögum sínum í KR.
Lið Signýjar sigraði í C-deild Minnibolta stráka á laugardaginn og lið Þórdísar í 7. flokki stúlkna á sunnudaginn.
Áður hafði Signý unnið til silfurverðlauna í Minnibolta stúlkna B-deild (þau verðlaun hafa hins vegar einhverra hluta vegna ekki borist verðlaunahöfunum).
Þórdís keppir svo í Reykjavíkurmótinu í Minnibolta stúlkna A-deild 10. febrúar.

Signý ásamt félögum sínum í 9 ára liðinu með gullverðlaun og bikar.
Myndina tók Jónas Snæbjörnsson

Þórdís með gullverðlaun og bikar
Myndina tók Ágúst Hrafnkelsson


Núna helgina 27.-28. janúar verður fjölskyldan svo stödd í Smáranum í Kópavogi þar sem allir krakkarnir verða að keppa á KEA-skyrmóti Breiðabliks. Í lok febrúar er svo þriðja umferðin í Íslandsmótinu þannig að það er nóg framundan hjá systkinunum í sportinu og foreldrunum í klappliðinu.

19. janúar 2007

Signý dregur björg í bú

Það kom að því að þetta körfuboltabrölt barnanna myndi skila einhverju ...
http://www.kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=257981

Myndina tók Stefán Helgi Valsson

(tekið af heimasíðu KR www.kr.is/karfa)

Á síðunni er líka frétt frá Reykjavíkurmótinu um síðustu helgi þar sem 9 ára stelpurnar kepptu við Fjölni og stóðu sig mjög vel.

www.kr.is/karfa/frettir/?ew_news_onlyarea=content1&ew_news_onlyposition=0&cat_id=17408&ew_0_a_id=256993

4. janúar 2007

Gleðilegt ár

Og takk fyrir það gamla.

Áramótin

Mennirnir sem sáu um mat og drykk kátir í eldhúsinuBeðið eftir matnumForrétturinn kominn á borðið

Feðgarnir að fara að borða skinku og melónuforréttinn - kokkurinn þreytulegurMmmmmmm - ekkert smá girnileg appelsínuönd ..... Eftir matinn var farið út að sprengja

3. janúar 2007

Aðventukransinn

Nonni gafst ekki upp fyrr en hann fann myndina af snjúkúluþemaaðventukransi Grandavegarins.
Vessogú - hérna er hún.

2. janúar 2007

Tombóla til styrktar SOS barnaþorpunum

Í upphafi jólafrísins héldu systkinin ásamt Salvöru vinkonu Signýjar og Magnúsi vini Ólafs Þorra "tombólu" úti á Eiðistorgi þar sem þau seldu ýmsa dýrgripi til styrktar SOS barnaþorpunum. Fyrst fóru þau í göngutúr um hverfið og bönkuðu upp á hjá nágrönnunum til að safna dóti og myndin er tekin þegar dótið var flokkað og því raðað í kassa í kjallaranum okkar áður en þau fóru að selja.
Það gekk rosalega vel að selja en samt voru það ennþá fleiri sem styktu málefnið án þess að þurfa að taka með sér eitthvert dót heim. Við fórum svo fyrir jól og afhentum peningana (12 þús. krónur að mig minnir) á skrifstofu SOS og fengu krakkarnir jólasveinahúfur og jólamerkimiða fyrir dugnaðinn.

Jólakötturinn



Gleðileg jól


Undirbúningur jólanna á Grandaveginum

Húsmóðirin klippti niður greni og vafði því um hálmhring. Systkinin skreyttu svo herlegheitin í kringum þemað "snjór". Allt voða "pro". Skil ekki af hverju aldrei var tekin mynd af afrakstrinum - snjókúluaðventukransinum.......

Svo heimsóttu systkinin úr Hrísrimanum okkur og hjálpuðu til við piparkökuskreytingar. Það var líka mjög listrænt.

Okkur hafði borist sms með "tips" frá ráðagóða vinnufélaganum um að eyrnapinnar væru algjörlega málið í piparkökumálun.

Útvegsspilið


Signýju og Ólafi Þorra finnst mjög gaman að spila Útvegsspilið þegar við förum í sveitina. Þórbergur er líka stundum fáanlegur til að vera með.