19. maí 2008

Helgafell 8. maí

Fyrsta gönguferð VST í sumar var farin í gærkvöldi (8. maí)
Ég var "farastjóri" í ferðinni og af 12 manns sem komu "átti" ég 5. Gengið var af stað kl. 18:30 frá stæðinu við Kaldársel og farið upp á fjallið í skarðinu milli Helgafells og Valahnúka. Nokkuð teygðist úr hópnum á leiðinni upp á topp, en gönguferðin þangað tók á bilinu 60-75 mín.
Veðrið var dásamlegt (sól, logn og hlýtt) og útsýni frábært þannig að við tókum okkur góðan tíma á toppnum.
Ákveðið var að freista þess að finna gatklettinn á niðurleiðinni og tókst okkur að finna réttan stað. Nokkuð bratt er niður af fjallinu á þessum stað og mjög laus jarðvegur þannig að fólk fór sér rólega. Bröltið þarna niður er þó vel þess virði.
Bakaleiðin var svo farin suður fyrir Helgafell, en við vorum ekki komin í bílana fyrr en kl. 22:00. Þar tókum við okkur góðan tíma í sólinni í að gæða okkur á samloku- og súkkulaðiveislunni sem STVST bauð upp á.

Hjólað upp að Elliðavatni

3. maí 2008
Fórum í rosa fína hjólaferð í gær. Lögðum af stað að heiman um hálf fjögur og hjóluðum meðfram Ægissíðunni út í Nauthólsvík þar sem við fundum okkur pínulítið skjól í rokinu og slökuðum á í sólinni. Fórum áfram yfir Hafnarfjarðarveginn og krakkarnir léku sér smá stund í litlum skógi sem er þar rétt hjá (grenndarskógur Hvassaleitisskóla) og svo var haldið áfram með smá leik-stoppi á hjólabrettapalli í Fossvogsdalnum.
Stigum í smá stund af hjólunum utan við leikskólann Læk (gamla leikskólann hans Ólafs Þorra) þar sem við fórum í regngallana, því þá var komin úrhellisriging.
Hjóluðum svo í rigningunni meðfram Elliðaánum upp að Elliðavatni með smá stoppi í nýju Bónus búðinni í Vatnsendahverfinu (klikkuðum aðeins á nestinu fyrir þessa ferð). Fengum okkur vel að borða í skjóli við stífluna og rúlluðum svo aftur heim á leið. Vorum komin heim akkúrat mátulega til að grilla kvöldmatinn. Ef veðrið er betra og meira nesti með í för, er hægt að taka daginn í svona ferð og stoppa á miklu fleiri skemmtilegum stöðum á leiðinni. Mældi þetta á korti og þetta eru samtals um 15 km hvora leið.

9. maí 2008

Kleifarvatn, Krýsuvík, Reykjanestá og Skálafell

1. maí 2008
Fórum í góða ferð í dag.
Byrjuðum á að leita að einnota grilli um allt höfuðborgarsvæðið og fundum loksins eitt í Hafnarfirði. Keyrðum svo upp að Kleifarvatni þar sem við grilluðum pylsur og lágum í mosanum.
Gengum svo um hverasvæðið á Sveifluhálsi. Keyrðum svo til Krýsuvíkur, Gindavíkur alla leið út að Reykjanesvita. Lögðum á bílastæði niðri við sjó og gengum á Valahnjúka. Fórum þaðan niður í Kirkjuvogsbás þar sem við fengum okkur heitt kakó og samlokur. Gengum þaðan meðfram fjörugrjótgarðinum (Valahnjúksmöl) nokkurn spöl þar til við komum að Valbjarnargjá. Þaðan fylgdum við stikunum að vitanum á Reykjanestá. Gengum þaðan yfir hraunið í beina stefnu á Skálafell (sem er einu sinni varla hóll).
Á toppnum er búið að koma fyrir köðlum ofan í gjótur sem þar eru. Nonni fór ofan í annan hellinn og Signý og Óli kíktu ofan í hinn. Borðuðum aftur svolítið nesti á Skálafelli og fórum svo beina leið í átt að Reykjanesvita og upp á Bæjarfell þar sem vitinn er.