30. nóvember 2006

hæhæ

Ég var á badmintonæfingu áðan:) það var svakalega gaman eins og vanalega.
Ég og Kristín keptum við tvær stelpur og við unnum;) (svaka montin)
Það er allt fína að frétta hjá Ronju litlu og Trítlu flóni :o)
Og svo auðvitað líka þá segi ég bara allt fínasta!


k.v. Þórdís Ólöf


Vinkonurnar Þórdís og Trítla

Hérna finnst Trítlu gott að kúra og fela sig

En Ronja er búin að finna sinn uppáhaldsstað - uppi í skólatöskuhillu ofaná Bangsa


Trítla fylgist vel með Ronju innan úr húsinu sínu

Svo spjalla þær svolítið saman

En þegar hamagangurinn í Ronju verður of mikill er gott að geta farið aftur inn, Ronja nefninlega þorir ekki að fara í heimsókn, bankar bara, en þegar Trítla kemur til dyra skýst Ronja aftur upp á þak


Fyrsti dagurinn á Grandaveginum. Ronja fyrirsæta

Fyrstu kynni þeirra Trítlu og Ronju

Ronja 6 eða 7 vikna á Torfastöðum












Dýralífið á Grandaveginum

Fyrstu fréttirnar af okkur í þessu fína húsi á Grandaveginum.


Fórum í hópferð til dýralæknisins í gær; ég, börnin þrjú, Trítla og Kisa sem þá var nafnlaus. Dýralæknirinn var snögg að kyngreina kisu og eftir að heim var komið hofst langt og erfitt ferli við nafnaleit á dömuna. Fyrst var stungið upp á einum 30 nöfnum og svo fengu allir að gefa einhverjum fimm nöfnum stig frá 1 upp í 5. Eftir það voru stigin lögð saman og fimm vinsælustu nöfnin valin. Þeim voru svo gefin stig frá 1 upp í 3 og að lokum var nafnið Ronja valið.

Ætla að reyna að setja inn nokkrar myndir.



Signý og Petrov - kisinn sem við fengum hjá rússneska sjómanninum.