Sýnir færslur með efnisorðinu baekur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu baekur. Sýna allar færslur

16. nóvember 2007

Í tilefni af degi íslenskrar tungu og 200 ára afmæli Jónasar þá finnst mér þetta við hæfi

Ég er því miður ekki ennþá komin með nægan þroska til að kunna almennilega að meta kveðskap Jónasar, en ég hef hins vegar, eins og Amma, afskaplega gaman af þessari sögu.

Þegar drottningin á Englandi fór í orlof sitt

14. nóvember 2007

Astrid Lindgren 100 ára í dag

Þó það sé nú alls ekki meiningin að þetta sé eitthvert voðalegt bókablogg þá bara verð ég að koma þessu að.
Að sjálfsögðu mun Grandavegurinn lesa nokkrar vel valdar bækur eftir Astrid Lindgren í dag. Af nógu er að taka.

Í viðtali við Sigþrúði Gunnarsdóttur (sem vinnur m.a. við að gefa út bækur Lindgren Íslandi) í Fréttablaðinu í dag kemur fram að til standi að endurútgefa bækurnar um Madditt og Betu. Ég fagna því og verð mætt með svefnpokann í röð fyrir utan Mál og Menningu til að kaupa fyrsta eintakið.

Mikið öfundaði ég Lólu af þessum bókum.

13. nóvember 2007

Í húsi Júlíu

Fékk þessa bók eftir Fríðu Á Sigurðardóttur lánaða í Mánahlíð og las í vetrarfríinu.
Veit ekki hvort ég á að mæla með henni eða ekki. Að mörgu leiti var þetta góð bók. Frásagnarstíllinn er “bældur” og margt látið ósagt – skv. prinsippinu “Af því þekkjast góðar sögur að geta verður í eyður,” eins og Júlía segir snemma í bókinni.
Mér finnst hins vegar eins og þessi stíll verði amk. á köflum svolítið sundurlaus og ruglingslegur. Oft flýtur textinn einhvern veginn milli draums og vöku (en það hafði þau áhrif á mig að ég var stundum alveg að sofna við lesturinn).
Bókin fjallar um Júlíu, konu sem er föst í hlutverki sínu sem mamma/amma gegn vilja sínum (eða ekki ...?). Bælingin og þögnin koma vel fram í þessu sjónarmiði Júlíu: “Aldrei að sjokkera börn sín með eigin draumum” Finnst þetta snilldar setning. Þrátt fyrir klisjukennt viðfangsefni er sagan alls ekki klisjukennd því Júlía er miklu margslungnari en svo að vera bara píslarvottur.
Endann vantar á söguna. Júlía er sátt við það, en skrásetjari ekki en “Hvað getur skrásetjari annað gert þegar söguhetjan labbar sig út úr sögunni?”
Ég verð að vera sammála Júlíu, sagan þarf ekkert nauðsynlega á endi að halda því sagan sem slík skiptir í raun engu máli, heldur sjálf frásögnin.
Jú, kannski ég mæli með henni, og þó ... ?
Þið sem hafið lesið bókina – hvað fannst ykkur ?
Myndin er tekin sumarið 2006 í TerraMítica

7. nóvember 2007

Jósefína og Húgó

Höfum verið að lesa Jósefínubækurnar eftir Maríu Gripe undanfarið. Hef lesið svona kafla og kafla fyrir krakkana á kvöldin en svo tókum við þetta af meiri krafti í vetrarfríinu og kúrðum okkur uppi í rúmi á morgnana og lásum nokkra kafla í einu.
Mæli með að allir rifji upp þessar bækur með börnunum sínum (eða án þeirra - þær standa sko líka alveg fyrir sínu í fullorðinsheiminum).

Maria Gripe, sem er nýlega látin, skrifaði 36 bækur sem voru þýddar á fjölmörg tungumál og er talin með afkastamestu rithöfundum Svíþjóðar. Ætli ég fái ekki Elvis bækurnar lánaðar á bókasafninu næst til að lesa.

Frídagar

Vetrarfríið á Grandaveginum var óvenjulega ljúft í ár - ástæðan er náttúrulega sú að í fyrsta skipti í sögu vetrarfríanna gáfum við skít í vinnuna og tókum frí með krökkunum.
Við byrjuðum fríið á að fara norður í sæluna í Mánahlíð. Þar voru dýrindis máltíðir á hverjum degi og öll aðstaða eins og á fimm stjörnu hóteli (krakkarnir dreifðu meira að segja svo vel úr sér um húsið að þau voru öll í sérherbergjum ...) og Stefán frændi bjó til snjókall með systkinunum og spilaði við þau bæði Íslandsspilið og ægilega skemmtilegt leir-spil sem við keyptum.
Við fórum líka í leikhús og sáum Óvita. Við gefum leikritinu okkar allra bestu dóma. Krakkarnir skemmtu sér vel og mamman var í "sjokki" út af beittri ádeilunni - man ekki eftir að ádeilan hafi verið svona beitt í gamladaga þegar ég las bókina og sá leikritið í sjónvarpinu - en það er auðvitað af því að nú er verið að deila á mig .... Guðrún Helgadóttir er náttúrulega snillingur, nýja tónlistin er vel heppnuð og leikararnir stórir og smáir standa sig með miklum sóma.

27. september 2007

A long way gone


Las þessa bók um daginn. Mæli með henni fyrir alla lesendur Fréttasíðu Grandavegarins (ég get lánað áhugasömum mitt eintak).

Í bókinni segir Ishmael Beah sögu sína af því hvernig 12 ára stráklingur í Sierra Leone, sem er á leiðinni til næstu borgar til að taka þátt í hæfileikakeppni með því að dansa hipphopp, sogast inn í borgarastyrjöldina. Hann týnir fjölskyldu sinni og vafrar um skóginn og milli þorpa ásamt öðrum drengjum á svipuðum aldri í langan tíma. Hann kemst loks komst í skjól og undir verndarvæng fullorðinna, en ekki líður á löngu þar herinn krefst krafta hans og annarra drengja.
Þar eru þeir látnir taka þátt í ólýsanlegum grimmdarverkum, klikkaðir af dópi og heilaþvotti.
Þegar hann var 16 ára var honum bjargað af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna sem kom honum í endurhæfingu.
Þetta er ótrúleg saga, skrifuð af mikilli einlægni og trú á að hið góða fái sigrað hið illa.

Þið verðið að lesa þessa bók

8. febrúar 2007

Flugdrekahlauparinn

Aðfaranótt sunnudagsins síðasta dreif ég loksins í að lesa Flugdrekahlauparann eftir Khaled Hosseini. Hef lengi ætlað að lesa hana og stakk henni loksins með í matarkörfuna í Nóatúni á laugardaginn.
Mæli ég með því við þá örfáu lesendur fréttasíðu Grandavegarins sem ekki eru búnir að lesa bókina að gera það.
Sögusviðið er Afganistan fram að því er Sovétmenn ráðast inn í landið, innflytjendasamfélag Afgana í Bandaríkjunum og síðar Afganistan undir stjórn Talíbana.
Sagan er verulega áhrifarík og átakanleg og ég gat ekki hætt lestrinum fyrr en ég var búin með bókina. Maður finnur til bæði mikillar samúðar og reiði gagnvart söguhetjunni Amir, þó að segja megi að eftirminnilegustu persónurnar séu Hassan vinur Amirs og skíthællinn og sadistinn Assaf. Atvikið sem er lykilatriði sögunnar er síðan svo skelfilegt og á sama tíma svo táknrænt og lýsandi fyrir mannlegt eðli í skugga ógnar að það gleymist ekki.