Í húsi Júlíu
Veit ekki hvort ég á að mæla með henni eða ekki. Að mörgu leiti var þetta góð bók. Frásagnarstíllinn er “bældur” og margt látið ósagt – skv. prinsippinu “Af því þekkjast góðar sögur að geta verður í eyður,” eins og Júlía segir snemma í bókinni.
Mér finnst hins vegar eins og þessi stíll verði amk. á köflum svolítið sundurlaus og ruglingslegur. Oft flýtur textinn einhvern veginn milli draums og vöku (en það hafði þau áhrif á mig að ég var stundum alveg að sofna við lesturinn).
Bókin fjallar um Júlíu, konu sem er föst í hlutverki sínu sem mamma/amma gegn vilja sínum (eða ekki ...?). Bælingin og þögnin koma vel fram í þessu sjónarmiði Júlíu: “Aldrei að sjokkera börn sín með eigin draumum” Finnst þetta snilldar setning. Þrátt fyrir klisjukennt viðfangsefni er sagan alls ekki klisjukennd því Júlía er miklu margslungnari en svo að vera bara píslarvottur.
Endann vantar á söguna. Júlía er sátt við það, en skrásetjari ekki en “Hvað getur skrásetjari annað gert þegar söguhetjan labbar sig út úr sögunni?”
Ég verð að vera sammála Júlíu, sagan þarf ekkert nauðsynlega á endi að halda því sagan sem slík skiptir í raun engu máli, heldur sjálf frásögnin.
Jú, kannski ég mæli með henni, og þó ... ?
Þið sem hafið lesið bókina – hvað fannst ykkur ?
Myndin er tekin sumarið 2006 í TerraMítica

5 ummæli:
Mamma !!! Ég veit að þú hefur lesið bókina - örugglega þú líka Pabbi. Hvað með þig AnnaBjökk ?
Koma svoooo
Það er svo langt síðan ég las þessa bók (var það ekki um síðustu jól?) að ég man þetta ekki svo gjörla. En bækur Fríðu eru nú dálítið svona eins og þú lýsir þessu að það þarf að geta í eyður.
En mér finnst alltaf eitthvað heillandi við þær.
ÞGS
Jú, ég er dálítið sein í jólabókunum í ár ...
Lóla, ég kem með bókina í afmælið á sunnudaginn, þú verður að lesa hana líka.
Hvar er bókin? Uss, að lofa manni bók í næstu heimsókn og svo bara kemur engin bók! Hvusslags erþetta?
Annas þá held ég að þú ættir að lesa "The Secret" og koma svo með bókadóminn hingað inn. ... eða kannski ekki ;-)
Æ, já bókin gleymdist víst heima. Man eftir henni næst.
Mér fannst dómur Einars Loga um "The Secret" algjör snilld - man bara því miður ekkert hvernig hann var, en hann var snilld.
Skrifa ummæli