30. maí 2007

Háskóli Íslands í myrkri

Þessi mynd af Háskóla Íslands var tekin með Belfoca II (gömlu vélinni hans Gunnars). Myndavélinni var komið fyrir á stalli Sæmundar, ljósopið nánast lokað og takknum haldið niðri í 60 sek (það var myrkur úti). Frábær vél.

Forsæti I

Forsæti I í kringum 1945. Árið 1956 var húsið stækkað til austurs milli hlöðunnar hægra megin myndinni og íbúðarhússins. Aftur var húsið stækkað árið 1972 og þá til suðurs.
Þessi mynd er hinsvegar alger andstæða við fyrri myndina. Hún er tekin akkúrat úr hinni áttinni (180°) og er tekin um vetur árið 2006.

29. maí 2007

Listasmiðja í Forsæti

Tengdaforeldrar mínir ætla að opna listasmiðju í sumar (smellið á myndina og skoðið heimasíðuna þeirra).
Núna um hvítasunnuhelgina var hátíðin Fjör í Flóa og af því tilefni var opið hús í gamla fjósinu í Forsæti. Þar er nú kominn glæsilegur sýningarsalur þó að framkvæmdir séu ennþá í fullum gangi. Fjölmargir nýttu tækifærið til að kíkja á framkvæmdirnar þannig að það er greinilega mikill áhugi fyrir þessu verkefni þeirra.
Opnun listasmiðjunnar er svo áformuð þann 19. ágúst næstkomandi.

20. maí 2007

Gönguferð um helgina




Á fimmtudaginn gekk Grandavegurinn með VST uppá Vífilsfell. Það var ágætisveður í byrjun ferðar, en það breyttist hinsvegar í rigningu og svo snjókomu og mikið rok þegar leið á ferðina og ofar dró. Sumir komust alveg upp, en aðrir snéru við.

Í dag komst fjölskyldan hinsvegar á Hestfjall. Alveg tilvalin fjölskylduganga (samkvæmt Ara Trausta) en að sjálfsögðu völdum við ekki alveg einföldustu leiðina og gengum upp mikinn bratta og skriður. Fórum hinsvegar betri leið niður.

Myndirnar sem fylgja með þessari frétt eru í engu samræmi við greinina. Önnur er tekin í Búdapest, en hin er tekin í Híðarfjalli. Myndirnar eiga það sameignilegt að þær eru báðar teknar á Minolta Autocord.

16. maí 2007

Óli 8 ára í dag

Óli er... innfæddur KR-ingur. Hann fæddist 16. maí árið 1999. Þetta ár urðu KR ingar meistarar og hann ætlar að komast í meistaradeild bæði í körfubolta og fótbolta

Óli var mjög mikið matargat þegar hann var lítill og fékk sér oft 2-3 morgunmat um leið og allir voru að fara á fætur.

Fleiri myndir

Óli að laga bílinn hans pabba síns (Saabinn eitthvað bilaður)

Alltaf gaman að borða hjá afa og ömmu í sveitinni.

Gott að kúra hjá stóru systrum, sem kenna manni að lesa, skrifa og ....


Þetta er uppáhaldsstaðurinn í Mánahlíðinni (og líka ísskápurinn).


14. maí 2007

Hitað upp fyrir Frakklandsferð

Spennan magnast og allir farnir að hlakka til.
Hérna hægra megin á síðunni (neðarlega) er Grandavegurinn að safna saman einu og öðru sem gæti nýst vel í aðdraganda Frakklandsferðarinnar.

Ég bendi áhugasömum sérstaklega á tengilinn "Frönskukennsla fyrir krakkana" en Signý og Óli eru orðin frönskuséní eftir að hafa skoðað þetta í gær.

Fyrir þá sem leggja ekki í formlegt frönskunám að sinni þá er stutta orðabókin þar fyrir neðan ágætur upphafsreitur. Ég vil þó taka fram að ég ábyrgist hvorki rithátt né framburð.

10. maí 2007

Til hamingju með afmælið Ágúst

Við hugsuðum alltaf vel um litla bróðir.

8. maí 2007

Tvær góðar




Hér eru þær, Minolta Autocord og Belfoca II, báðar frá 1956.

Belfoca II er fermingarvélin hans tengdapabba. Hún tekur sömu filmur og Minolta, nema þar er bæði hægt að velja um 6x6cm og 6x9cm myndir. Þetta er ekkert einnota dót.
N.

Minolta Autocord


Eignaðist frábæra myndavél. Minolta Autocord frá '56. Tekur 6x6cm myndir. Er aðeins búinn að skanna inn nokkrar myndir, en hún virðist virka fínt. Stórskemmtilegt og góð tilbreyting frá digital vélum, þar sem allt gengur útá magnið. Spurning hvað fornleifafræðingar finna eftir 300 ár af myndum, þegar allar tölvur verða úreltar og ónýtar. Harðir diskar á ruslahaugunum og megnið af digital myndum týnt. Þá verða það gömlu filmurnar sem varðveitast.....

N.

Búdapest 2007







Við Guðrún fórum fyrir 2 vikum í frábæra ferð til Búdapest með JÁVERK (www.javerk.is). Hér eru nokkrar myndir sem við tókum við það tækifæri. Góður matur, gott veður, skemmtilegt fólk, skítug Dóná, góð fiðlutónlist, gott rauðvín, ódýr föt, mikið dansað en lítið sofið.

N.