Gönguferð um helgina

Á fimmtudaginn gekk Grandavegurinn með VST uppá Vífilsfell. Það var ágætisveður í byrjun ferðar, en það breyttist hinsvegar í rigningu og svo snjókomu og mikið rok þegar leið á ferðina og ofar dró. Sumir komust alveg upp, en aðrir snéru við.
Í dag komst fjölskyldan hinsvegar á Hestfjall. Alveg tilvalin fjölskylduganga (samkvæmt Ara Trausta) en að sjálfsögðu völdum við ekki alveg einföldustu leiðina og gengum upp mikinn bratta og skriður. Fórum hinsvegar betri leið niður.
Myndirnar sem fylgja með þessari frétt eru í engu samræmi við greinina. Önnur er tekin í Búdapest, en hin er tekin í Híðarfjalli. Myndirnar eiga það sameignilegt að þær eru báðar teknar á Minolta Autocord.

4 ummæli:
Mér finnst myndirnar mjög lýsandi fyrir ferðina.
Þið lögðuð af stað prúðbúin í góðu veðri og enduðuð kappklædd í skítakulda ;-)(Funduð fullt af fólki og snjóbrettum á leiðinni niður.)
Sindri var mjög ánægður með snjóbrettamyndina.
Lóla
Nonni, ég er hæstánægð með að þú eigir þessa fínu myndavél. Minoltan hefur leitt til stóraukningar á færslum á þessu bloggi, og allar eru þær með myndum af fjölskyldunni sem mér leiðist nú ekki að sjá.
Kærar þakkir!!
Sammála seinasta ræðumanni. Við Þórbergur vorum núna í dag að fínpússa filmubirgðirnar okkar fyrir "roadtrippið" okkar núna í júní mánuði. Ég fékk gefins litla kælikistu fyrir bíl um daginn, hún verður fyllt af filmum. Það væri arfa slæmt að verða filmulaus í miðri ferð, hinsvegar ekkert mál að koma með filmu til baka.
Notaðir þú þrífót og selftimer á báðar þessar myndir?
Kær kveðja, Ágúst V.
Já. Hinsvegar ætlaði ég að nota tímatakkinn uppá Vífilfelli síðastliðinn laugardag til að festa afrek okkar EPS á filmu, en þá var hann bilaður )-:
N
Skrifa ummæli