Það var í maí 2005 sem við Þórbergur bróðir fórum í skíða- og snjóbrettaferð til Grænlands.
.
Á þessum tíma vann ég með Hallgrími Magnússyni hjá verktakafyrirtækinu Eykt. Hann sagði mér frá fyrirhugaðri ferð til Scoresbysund sem er á austurströnd Grænlands. Ég varð strax spenntur fyrir því að fara og nefndi þetta við litla bróður sem var fljótur að slá til. Þetta var 13 manna hópur, vant fjallgöngu- og skíðafólk, klifrarar og Everestfarar. Allir nema við Þórbergur voru vanir vetrarferðum. Það var því ekki laust við að ég væri stressaður yfir ferðinni, sérstaklega í ljósi þess að ég er mun slakari brettamaður en Þórbergur. Hann hafði í nokkur ár verið að kenna mér á bretti og reglulega reynt að fá mig í hin ýmsu stökk sem yfirleitt enduðu með blóðnösum og skrámum. Eftir því sem ég varð eldri, því hræddari varð ég við að gera eitthvað annað en að komast bara niður brekkuna.
.
Eftir innkaup og undirbúning, var loks lagt af stað 7. maí. Flogið var frá Reykjavík til Constable Point, sem er einangraðasti flugvöllur landsins við Scoresbysund. Völlurinn er 45 km frá bænum Ittoqqortoormiit en þangað fórum við með þyrlu. Ittoqqortoormiit er nyrsti bær Grænlands á austurströndinni. Bærinn var „búinn til“ af Dönum, til að styrkja stöðu þeirra gagnvart landakröfum Norðmanna. Árið 1925 var fólk flutt á svæðið, sumir viljugir aðrir óviljugir og þorpið stofnað. Þarna eru stundaðar veiðar og lítilsháttar ferðamennska, en flestir eru atvinnulausir og þiggja bætur frá Danmörku.
Við stoppuðum ekki lengi í þorpinu. Búið var að panta vistir sem voru tilbúnar á staðnum. Þeim var ásamt öðrum farangri komið fyrir á hundasleðum og svo var lagt af stað upp á jökul, á svæði sem heitir Liverpool land. Ferðin gekk vel, þar til brattinn varð meiri. Þá gátu hundarnir ekki lengur dregið bæði fólk og vistir og því var ekki annað að gera en að hjálpa til að ýta. Eftir um 3-4 tíma ferð voru við loks komin og var slegið upp búðum. Sett var upp eitt matartjald, en gist var í tveggja manna tjöldum.
.
Á jöklinum dvöldum við í 5 daga. Farnar voru dagsferðir í nærliggjandi fjöll sem nóg var af. Flestir voru á telemark skíðum, sem svipar til gönguskíða, að því leiti til að menn eru lausir um hælinn. Þegar gengið er upp, þá eru sett skinn á skíðin til að renna ekki afturábak. Það er þó nokkur kúnst að renna sér niður á telemark skíðum og mun meiri þjálfun en með hefðbundnum svigskíðum. Við fjögur sem vorum á snjóbrettum gengum hinsvegar á snjóþrúgum þegar leiðin lá upp í móti. Það þurfti að hafa talsvert af útbúnaði með sér í dagsferðirnar. Auk fatnaðar og matar yfir daginn, þurfti að hafa mannbrodda, skóflu, snjóflóðaýlu og ísexi. Jafnvægið var því öðruvísi en vanalega þegar maður rennir sér frír og frjáls í Bláfjöllunum.
.
Fyrsta ferðin byrjaði ekki vel. Ég hafði tekið snjóbretti konunnar með, þar sem það er betra að vera með aðeins styttra bretti í bröttum brekkum. Það var talsverð þoka og í lok brekkunnar lenti ég á steini og slæm sprunga kom í brettið. Sem betur fer var einn svo forsjáll að taka með epoxy lím þannig að brettið var lagfært um kvöldið. Góð stemmning var í hópnum og á kvöldin voru sagðar sögur og borðað. Maturinn var mjög góður, en mikið fór af feitmeti og smjöri í kuldanum. Næturnar voru sérstaklega kaldar og þá kom sér vel að hafa góða dúnpoka.
Við hrepptum alls kyns veður í ferðinni. Fyrstu tvo dagana var þungbúið, en svo létti til og gerði sól og blíðu. Seinustu tvo dagana byrjaði að blása og síðustu nóttina gerði talsvert rok. Þá myndaðist sérstakt veðurfyrirbrigði, þannig að það gerði miklar rokhviður, sem vörðu í 2-3 mínútur, en datt í dúnalok á milli. Þegar við vöknuðum um morguninn var stóra matartjaldið fokið niður. Það var lagfært í snarheitum, þannig að hægt væri að matast áður en haldið væri heim.
.
Um miðjan dag, komu svo piltarnir aftur sem lóðsuðu okkur uppá jökul. Allur farangurinn var nú settur á sleðana, en nú var auðveldara að renna sér niður. Um kvöldið vorum við boðin í mat hjá dönskum manni sem rekur veðurstöðina á staðnum. Þar fengum við meðal annars ísbjarnarkjöt og selskjöt. Um kvöldið skellti hópurinn sér svo á eina skemmtistað þorpsins. Það var mjög sérstætt, en allir skemmtu sér þar saman frá unglingum upp í fólk á níræðisaldri.
Daginn eftir vaknaði hópurinn í misgóðu ástandi, en allir ánægðir með góða ferð. Danski þyrluflugmaðurinn ákvað að taka sérstaka ferð á heimleiðinni gegnum eitt gilið, sem reyndi verulega á magann í þeim sem voru í slæmu ástandi eftir gleði næturinnar. Eftir bið á Constable Point var loks sest upp í Fokkerinn sem flutti okkur heim. Góð ferð með fyrirheitum um að fara aftur aðra slíka.
.
SÓL.
Pistillinn birtist í fréttabréfi Velvakanda desember 2007 http://www.thjorsarver.is/Ungmennaf/