28. júní 2008

Kisa á vaktinni

Ronja er duglegur kisi. Þegar aðrir sofa vært, þá stendur hún oft vaktina inná baðherbergi og er klár til að elta skugga sem myndast á veggnum. Hún tekur starf sitt mjög alvarlega, enda eru þessir skuggar alvarleg ógnun við heimilið.
Ronja gegnir því svipuðu hlutverki og Mirage 2000 flugvélar Frakka sem koma hér öðru hverju og vernda landið fyrir ógn, sem er jafnraunveruleg og skuggarnir á baðherberginu.

N.