Jólabækurnar í ár
Byrjaði að lesa Sköpunarsögur eftir Pétur Blöndal í gær. Er búin að lesa um Guðrúnu Evu og Sjón. Næst er Einar Kárason. Mér líst mjög vel bókina og hlakka til að lesa meira.
Ég man vel líka eftir höfundinum - ég sem annars man yfirleitt ekki eftir fólki.
Hann var að vinna í Garðræktinni eitt sumar, eða allavega einn dag.... man bara eftir honum einn dag, en man það rosa vel. Vorum einhver hópur inni í bíl á leiðinni í sláttuverkefni þegar hann fræðir okkur um það að Michelle Pfeiffer sé fallegasta kona sem hann hafi nokkurntímann séð. Að hann sé rosalega hrifinn af henni. Einhverjir fleiri en ég hafa líklega ekki alveg komið henni fyrir sig því að bílstjórinn ákvað að gera stuttan stopp fyrir framan Borgarbíó þar sem verið var að sýna Tequila Sunrise. Þar sýndi Pétur okkur hvað Michelle Pfeiffer var rosalega falleg.
1 ummæli:
Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda. Það er enginn smá dugnaður í bókunum hjá ykkur sé ég og flott er mynd af börnunum ykkar.
Kveðja Hafdís
Skrifa ummæli