Áramótin
Áramótin voru með hefðbundnu sniði hjá Grandaveginum. Akureyri er besti staður í heimi um þennan tíma.
Góður matur, snjór, snjóbretti, krulla, meiri góður matur, lestur, bíómyndir, göngutúrar, spil, rakettur og áramótabúðingur.
Það er nauðsynlegt að vera vel útbúinn í fjallinu.
Kyndla vora hefjum hátt....
3 ummæli:
Flottar myndir. Já, það var gott að komast aðeins í fjallið um áramótin, hvergi betra að skíða og brettast.
Jæja, ekki kominn tími á smá blogg??
Jú, það er alveg áreiðanlega kominn tími á það.
Andleysið er bara algjört.
Gætum samt skrifað fjölmarga íþróttapistla þar sem stelpurnar raða inn Reykjavíkurmeistaratitlunum þessa dagana. Gætum svo sem líka skrifað langdregna bókapistla um eitthvað af öllum þessum bókum sem við drögum heim af Borgarbókasafninu á "hverjum" mánudegi.
Gætum líka sett inn auglýsingum um að Ronja sé aftur stungin af að heiman, og í þetta skiptið tók hún hálsólina af sér áður.
Það er sem sagt af nógu að taka.
Skrifa ummæli