8. maí 2007

Minolta Autocord


Eignaðist frábæra myndavél. Minolta Autocord frá '56. Tekur 6x6cm myndir. Er aðeins búinn að skanna inn nokkrar myndir, en hún virðist virka fínt. Stórskemmtilegt og góð tilbreyting frá digital vélum, þar sem allt gengur útá magnið. Spurning hvað fornleifafræðingar finna eftir 300 ár af myndum, þegar allar tölvur verða úreltar og ónýtar. Harðir diskar á ruslahaugunum og megnið af digital myndum týnt. Þá verða það gömlu filmurnar sem varðveitast.....

N.

1 ummæli:

Jóhanna sagði...

Flottir litirnir í þessari mynd. Gamaldags "soft" lúkk.

... þú gætir selt myndina sem forsíðumynd á áróðursbækling frá Frjálslynda flokknum ;-)

Lóla