Listasmiðja í Forsæti
Tengdaforeldrar mínir ætla að opna listasmiðju í sumar (smellið á myndina og skoðið heimasíðuna þeirra).Núna um hvítasunnuhelgina var hátíðin Fjör í Flóa og af því tilefni var opið hús í gamla fjósinu í Forsæti. Þar er nú kominn glæsilegur sýningarsalur þó að framkvæmdir séu ennþá í fullum gangi. Fjölmargir nýttu tækifærið til að kíkja á framkvæmdirnar þannig að það er greinilega mikill áhugi fyrir þessu verkefni þeirra.
Opnun listasmiðjunnar er svo áformuð þann 19. ágúst næstkomandi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli