13. nóvember 2007

Signý skátastúlka

Fann þessa mynd af Signýju á netinu hjá Ægisbúum, en hún er tekin í vígsluútilegunni í byrjun október.
Skátaútilega númer tvö var núna um síðustu helgi. Næst á dagskránni hjá sveitinni hennar, sem heitir Hafmeyjar, er Sovét í skátaheimilinu einhverja nótt í desember.
Fyrir þá sem ekki skilja skátalingó: Hint: Það er mikið étið og eitthvað sofið í Sovétinu.

1 ummæli:

Jóhanna sagði...

Ég alveg dauðöfunda Signýju af þessu skátastarfi sínu. Ég væri til dæmis alveg til í að fara í Sovét einhverja helgina, fara í Hike, súrra, vera á kamínuvakt, borða járnbrautarslys og sæmund, og já, bara gingGangGúllígúllí, IkkePikkePokke KalleJolle, IngiPingiPalavúPalavúPalavú!

Ávallt viðbúin!