19. maí 2008

Hjólað upp að Elliðavatni

3. maí 2008
Fórum í rosa fína hjólaferð í gær. Lögðum af stað að heiman um hálf fjögur og hjóluðum meðfram Ægissíðunni út í Nauthólsvík þar sem við fundum okkur pínulítið skjól í rokinu og slökuðum á í sólinni. Fórum áfram yfir Hafnarfjarðarveginn og krakkarnir léku sér smá stund í litlum skógi sem er þar rétt hjá (grenndarskógur Hvassaleitisskóla) og svo var haldið áfram með smá leik-stoppi á hjólabrettapalli í Fossvogsdalnum.
Stigum í smá stund af hjólunum utan við leikskólann Læk (gamla leikskólann hans Ólafs Þorra) þar sem við fórum í regngallana, því þá var komin úrhellisriging.
Hjóluðum svo í rigningunni meðfram Elliðaánum upp að Elliðavatni með smá stoppi í nýju Bónus búðinni í Vatnsendahverfinu (klikkuðum aðeins á nestinu fyrir þessa ferð). Fengum okkur vel að borða í skjóli við stífluna og rúlluðum svo aftur heim á leið. Vorum komin heim akkúrat mátulega til að grilla kvöldmatinn. Ef veðrið er betra og meira nesti með í för, er hægt að taka daginn í svona ferð og stoppa á miklu fleiri skemmtilegum stöðum á leiðinni. Mældi þetta á korti og þetta eru samtals um 15 km hvora leið.

Engin ummæli: