2. janúar 2007

Undirbúningur jólanna á Grandaveginum

Húsmóðirin klippti niður greni og vafði því um hálmhring. Systkinin skreyttu svo herlegheitin í kringum þemað "snjór". Allt voða "pro". Skil ekki af hverju aldrei var tekin mynd af afrakstrinum - snjókúluaðventukransinum.......

Svo heimsóttu systkinin úr Hrísrimanum okkur og hjálpuðu til við piparkökuskreytingar. Það var líka mjög listrænt.

Okkur hafði borist sms með "tips" frá ráðagóða vinnufélaganum um að eyrnapinnar væru algjörlega málið í piparkökumálun.

Engin ummæli: