Góðir gestir frá Svíþjóð
Á fimmtudaginn komu í mat til okkar Helena frænka frá Svíþjóð ásamt fjölskyldu. Við buðum upp á íslenska kjötsúpu sem rann ljúflega niður þrátt fyrir að manni finnist hún hálf óviðeigandi á svona heitum sumardegi.
Lóla, Rúnar og fjölskyldur komu líka í mat og náðu stelpurnar allar strax mjög vel saman. Eftir útileiki fram undir miðnætti fengu Snæfríður, Wilma og Althea svo að gista hjá okkur, en María Katrín fór heim með pabba sínum. Þetta var virkilega skemmtileg heimsókn en þægilegri gesti þau en Helenu, Staffan og dæturnar ásamt uppáhalds systkinum mínum og þeirra frábæru fjölskyldum er vart hægt að hugsa sér.
Set inn myndir síðar.
Lóla, Rúnar og fjölskyldur komu líka í mat og náðu stelpurnar allar strax mjög vel saman. Eftir útileiki fram undir miðnætti fengu Snæfríður, Wilma og Althea svo að gista hjá okkur, en María Katrín fór heim með pabba sínum. Þetta var virkilega skemmtileg heimsókn en þægilegri gesti þau en Helenu, Staffan og dæturnar ásamt uppáhalds systkinum mínum og þeirra frábæru fjölskyldum er vart hægt að hugsa sér.Set inn myndir síðar.
1 ummæli:
Gleðilega verslunarmannahelgi. Hvert á að skella sér?
Kveðja, Hafdís
Skrifa ummæli