Aldrei fór ég norður
Komumst ekki í fjallið um helgina eins og við höfðum ætlað okkur.
Flensan kom í heimsókn til okkar. Hitti Ólaf Þorra á miðvikudaginn og Signýju á fimmtudaginn.
Fyrir Óla var hún með háan hita, ofskynjanir og skítakvef meðferðis, en Signý fékk bara háan hita og skítakvef.
Flensan hitti ekki Þórdísi fyrr en seinnipart laugardags og átti þá eftir eitthvað lítið af gjöfum þannig að Þórdís fékk bara kvef. Við flensan hittumst hins vegar ekki fyrr en á sunnudagskvöldinu og þá var hún búin að byrgja sig upp aftur og gaf mér hita og skítakvef.
Nonni er búinn að ná að forðast þennann óboðna gest og hefur engar gjafir þegið af honum.Signý og Þórdís fóru í skólann í gær, Ólafur Þorri í dag og ég ætla í vinnuna á morgun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli