Páskarnir
Það var frábært veður á Akureyri um páskana. Sól og blíðskaparveður alla dagana nema á skírdag. Allir gátu því fundið sér eitthvað skemmtilegt að gera.
Börnin voru önnum kafin við snjóhúsagerð var grafið myndarlegt völundarhús í snjóskafl í Mánahlíðinni.
Börnin voru önnum kafin við snjóhúsagerð var grafið myndarlegt völundarhús í snjóskafl í Mánahlíðinni.
Að sjálfsögðu var farið í hinn árlega páskagöngutúr á sunnudeginum sem endaði í Kjarnaskógi.
Hér er hinsvegar myndskeið frá páskagöngutúrnum 2005.
Óli reynir að lyfta steini og Signý upplýsir um prakkarstrik....
Kjarnaskógurinn er fallegur.
3 ummæli:
Flottar myndir. Við gleymdum okkar myndavélum heima þannig að við eigum engar myndir frá páskum 2008.
Snjóhúsið glæsilega verður bara að lifa í minningunni.
... eruð þið farin að taka til í gömlum vídeóklippum? Það leynast örugglega mörg gullkornin þar.
Lóla og co
haha :) Yndisleg systkin :)
*Knús*
P.s. Guðrún, vertu óhrædd, það er ekkert að óttast :)
Hæ hæ Jóhanna Þorkels hérna. Alltaf gaman að kíkja hérna inn og fylgjast með ,,gamalli" vinkonu og hennar fjölskyldu. Það er nú spurning að hittast og rifja upp gamlar stundir. Flottar myndirnar af börnunum í snjónum í Mávahlíðinni ekki langt síðan við lékum þarna sjálfar.....eða jú kannski svolítið langt :)
Skrifa ummæli