9. nóvember 2007

Píanóið er nú stillt

Fengum loksins píanóstillingamann í heimsókn til okkar – en píanóið er búið að vera frekar falskt síðan eftir flutningana fyrir ári síðan.
Stefán Birkisson hjá Píanóþjónustunni ehf. http://notendur.mi.is/smh/piano/stillingar.htm kom til okkar og það kom náttúrulega í ljós að hann er sérstakur píanóhirðstillir Forsætisættarinnar ;-) Hann bað að heilsa.
Nú er aldeilis hægt að fara að æfa jólalögin.

8. nóvember 2007

Þórdís og Signý á Selfossi

Helgin 28.-29. október var líka helguð körfuboltanum, en þá kepptu 12 ára stelpurnar í 7.flokki KR sína fyrstu umferð í Íslandsmótinu. Farið var á Selfoss og keppt bæði laugardag og sunnudag. Signý fór líka með í þetta mót, og er greinilega orðin lykilmanneskja í flestum yngriflokkum KR. Systurnar stóðu sig báðar vel og áttu stóran hluta af körfum liðsins.
Þórdís í vörn á móti Selfossi - en sú sem er með boltann var án efa besta körfuboltastelpan á mótinu.
Þórdís tekur skot á körfuna
Hérna er frétt um mótið á heimasíðu KR.

Signý á ferð og flugi

Helgina 20.-21. október stóð Signý í stórræðum í körfuboltanum. MB10 ára drengja keppti þá sína fyrstu umferð í Íslandsmótinu og voru leikir bæði á laugardag og sunnudag. Rétt fyrir helgina barst hins vegar neyðarkall frá MB11 ára stúlkna og tóku nokkrar vaskar 10 ára hetjur að sér að fullmanna liðið. Eldsnemma á laugardagsmorginum lögðu þessar 10 stelpur svo af stað til Stykkishólms í stórum bíl. Mótið gekk vel og náðu stúlkurnar að tryggja sér stæti í A-riðli í næstu umferð og voru þreyttar og ánægðar þegar heim var komið seint á laugardagskvöldinu. Á sunnudeginum fór Signý svo í Garðabæinn og keppti þar með strákunum og enduðu þau í eftsta sæti A-riðils. Mikil sigurhelgi hjá okkar dömu.

7. nóvember 2007

Jósefína og Húgó

Höfum verið að lesa Jósefínubækurnar eftir Maríu Gripe undanfarið. Hef lesið svona kafla og kafla fyrir krakkana á kvöldin en svo tókum við þetta af meiri krafti í vetrarfríinu og kúrðum okkur uppi í rúmi á morgnana og lásum nokkra kafla í einu.
Mæli með að allir rifji upp þessar bækur með börnunum sínum (eða án þeirra - þær standa sko líka alveg fyrir sínu í fullorðinsheiminum).

Maria Gripe, sem er nýlega látin, skrifaði 36 bækur sem voru þýddar á fjölmörg tungumál og er talin með afkastamestu rithöfundum Svíþjóðar. Ætli ég fái ekki Elvis bækurnar lánaðar á bókasafninu næst til að lesa.

Frídagar

Vetrarfríið á Grandaveginum var óvenjulega ljúft í ár - ástæðan er náttúrulega sú að í fyrsta skipti í sögu vetrarfríanna gáfum við skít í vinnuna og tókum frí með krökkunum.
Við byrjuðum fríið á að fara norður í sæluna í Mánahlíð. Þar voru dýrindis máltíðir á hverjum degi og öll aðstaða eins og á fimm stjörnu hóteli (krakkarnir dreifðu meira að segja svo vel úr sér um húsið að þau voru öll í sérherbergjum ...) og Stefán frændi bjó til snjókall með systkinunum og spilaði við þau bæði Íslandsspilið og ægilega skemmtilegt leir-spil sem við keyptum.
Við fórum líka í leikhús og sáum Óvita. Við gefum leikritinu okkar allra bestu dóma. Krakkarnir skemmtu sér vel og mamman var í "sjokki" út af beittri ádeilunni - man ekki eftir að ádeilan hafi verið svona beitt í gamladaga þegar ég las bókina og sá leikritið í sjónvarpinu - en það er auðvitað af því að nú er verið að deila á mig .... Guðrún Helgadóttir er náttúrulega snillingur, nýja tónlistin er vel heppnuð og leikararnir stórir og smáir standa sig með miklum sóma.

6. nóvember 2007

Ronja er komin heim

heil á húfi. Hún hefur greinilega einhversstaðar fengið að borða því hún er vel haldin.
Það voru miklir fagnaðarfundir þegar við komum að norðan og Ronja tók á móti okkur á tröppunum. Það var knúsað langt fram á nótt og hún passaði upp á að sofa eitthvað í öllum rúmum heimilisins um nóttina.

2. nóvember 2007

Ronja týnd !

Litla kisan okkar hún Ronja er týnd.
Hún fór út síðastliðinn sunnudag og kom ekki heim aftur.
Við erum öll mjög sorgmædd yfir þessu, enda er Ronja einstaklega skemmtilegur og góður köttur. Við auglýstum eftir henni á Kattholti og vonandi finnst hún eða skilar sér sem allra fyrst.
http://www.kattholt.is/displayer.asp?Page=21&FAQ_type=Flokkur&p=ASP\Pg21.asp

15. október 2007

Systur í baði

27. september 2007

A long way gone


Las þessa bók um daginn. Mæli með henni fyrir alla lesendur Fréttasíðu Grandavegarins (ég get lánað áhugasömum mitt eintak).

Í bókinni segir Ishmael Beah sögu sína af því hvernig 12 ára stráklingur í Sierra Leone, sem er á leiðinni til næstu borgar til að taka þátt í hæfileikakeppni með því að dansa hipphopp, sogast inn í borgarastyrjöldina. Hann týnir fjölskyldu sinni og vafrar um skóginn og milli þorpa ásamt öðrum drengjum á svipuðum aldri í langan tíma. Hann kemst loks komst í skjól og undir verndarvæng fullorðinna, en ekki líður á löngu þar herinn krefst krafta hans og annarra drengja.
Þar eru þeir látnir taka þátt í ólýsanlegum grimmdarverkum, klikkaðir af dópi og heilaþvotti.
Þegar hann var 16 ára var honum bjargað af Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna sem kom honum í endurhæfingu.
Þetta er ótrúleg saga, skrifuð af mikilli einlægni og trú á að hið góða fái sigrað hið illa.

Þið verðið að lesa þessa bók

12. september 2007

Gönguferð til US and A

Við fórum í frábæra ferð til Minnisota og heimsóttum Ágúst, Kolbrúnu, Sigurjón og Margréti.

Opinberi tilgangur ferðarinnar var að ganga SHT (Superior Hiking Trail, http://www.shta.org/) sem er gönguleið við Lake Superior. Þetta er í raun eins og að ganga við úthaf, því Lake Superior er stærsta ferskvatn í heimi og er að flatarmáli á við 80% af Íslandi.

Hinn raunverulegi tilgangur var hinsvegar að versla í hinni frábæru Rei (http://www.rei.com/) útivistarbúð og fara svo á góða veitingastaði (og http://www.mallofamerica.com/).

Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni.

Við keyrðum norður á bóginn (sumir voru á hægfara farartækjum).

Stoppuðum á góðum veitingastað á leiðinni.

Byrjuðum gönguna, en við gengum samtal um 45 km.

Fyrstu nóttina, var tjaldað í myrkri, þá komu höfuðljósin úr Rei sér vel.
Guðbergur vildi endilega taka tafl og klukku með svo bræður hans gætu telft við öll hugsanleg tækifæri....

Útsýnið var stórkostlegt.

Enduðum svo á að borða á góðum veitingastað eftir 3 nætur í tjaldi. "My brother is still hungry......"

Kvöldsólin.

11. september 2007

Ólafur Þorri Sigurjónsson fékk skurð á æfingu

Frétt af heimasíðu KR
http://www.kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=289198
Ólafur Þorri Sigurjónsson varð fyrir því óhappi að karfa sem hengd er á rimlana í DHL-Höllinni féll af þegar að þeir félagar voru á fullu við að troða á hana. Karfan er ekki troðslukarfa og því gerðist það því miður að karfan féll á Ólaf Þorra þegar að hann og félagar hans voru að troða "alley op" með þeim afleiðingum að sauma þurfti strákinn sex þriggjastiga spor í augabrúnina.
Ólafur Þorri var kominn heim kátur með stóran plástur yfir saumunum.
Ólafur Þorri getur ekki beðið eftir að komast á æfingu á nýjan leik en öllum strákunum á æfingu dauðbrá þegar að atvikið gerðist. Strákurinn er brattur og það er fyrir öllu. Við vonum að Ólafur Þorri jafni sig sem allra fyrst og mæti gallvaskur á minniboltaæfingar.

17. júlí 2007

Innstidalur

Fórum í frábæra ferð um síðustu helgi. Því miður misstu Þórdís og Óli af henni þar sem þau voru í Vindáshlíð og á Akureyri þannig að við verðum pottþétt að endurtaka ferðina síðar.
Við vorum hálf löt allan laugardaginn, vorum bara að stússast í þvottum og tiltekt heima við fram eftir degi. Veðrið var hins vegar svo frábært að við vorum orðin ansi óróleg seinni part dags að komast eitthvert út auk þess sem Signý sótti það mjög fast að fá að labba af stað með nýja bakpokann sinn í alvöru ferð.
Þó að langt væri liðið á daginn ákváðum við því að drífa okkur af stað í útilegu, en eftir flutningana í vetur er hins vegar svo mikið óskipulag á útilegugræjunum okkar þannig að við urðum að byrja á að keyra í Forsæti og finna svefnpoka og dýnur.

Keyrðum svo til baka yfir heiðina og lögðum af stað frá skíðaskála Víkings í Sleggjubeinsskarði kl. 23 á laugardagskvöldið. Þykk þoka lá yfir svæðinu en við fylgdum “bláu stikunum”.
Þurftum stundum að giska á í hvaða stefnu næsta stika væri en náðum heilu og höldnu inn í Innstadal um kl. 23:45. Fylgdum þá rauðum læk í vesturátt þar til við komum inn að fallegu gili þar sem við tjölduðum og fengum okkur heitt kakó og samloku fyrir svefninn.
Vöknuðum í æðislegu veðri á sunnudagsmorgninum og fórum í morgungöngu upp á Húsmúla og þaðan eggjarnar upp á Hengilinn. Fórum ekki alla leið á Skeggja, en fengum samt stórkostlegt útsýni. Tókum svo saman tjaldið og gengum sömu leið til baka og vorum komin að Víkingsskála kl. ca. 14 eftir um 45 mín göngu.Er búin að vera að skoða frábæra síðu um Hengilssvæðið og stal myndinni af vegvísinum þaðan til að myndskreyta ferðasöguna þangað til ég set inn okkar myndir.
Nú er bara að skipuleggja hvaða ferð á að fara um næstu helgi ;-)

Góðir gestir frá Svíþjóð

Á fimmtudaginn komu í mat til okkar Helena frænka frá Svíþjóð ásamt fjölskyldu. Við buðum upp á íslenska kjötsúpu sem rann ljúflega niður þrátt fyrir að manni finnist hún hálf óviðeigandi á svona heitum sumardegi. Lóla, Rúnar og fjölskyldur komu líka í mat og náðu stelpurnar allar strax mjög vel saman. Eftir útileiki fram undir miðnætti fengu Snæfríður, Wilma og Althea svo að gista hjá okkur, en María Katrín fór heim með pabba sínum. Þetta var virkilega skemmtileg heimsókn en þægilegri gesti þau en Helenu, Staffan og dæturnar ásamt uppáhalds systkinum mínum og þeirra frábæru fjölskyldum er vart hægt að hugsa sér.
Set inn myndir síðar.

Af barnaþrælkun og fleiri sumarverkefnum

Sumarið hefur ekki verið alveg tíðindalaust hjá Grandavegarsystkinunum. Vikuna sem Ólafur Þorri ætlaði að vera í fótboltaskóla bauðst honum að fara í byggingarvinnu með Þórbergi frænda sínum. Atvinnan var auðvitað þegin með miklum þökkum og það var mjög spenntur ungur maður sem vaknaði eld snemma morguns og setti upp vinnuvettlingana áður en hann nuddaði stírunar úr augunum.
Þórdís komst í skrifstofuvinnu hjá Jáverk í tvo daga þar sem hún flokkaði reikninga, raðaði í og merkti möppur, ógilti teikningar og fleira spennandi.
Öll systkinin hafa svo komist í sveitina til Afa og Ömmu þar sem verkefnin eru margvísleg.

Bæði Þórdís og Signý hafa farið í vikudvöl í Vindáshlíð í sumar en Ólafur Þorri fór til Afa og Ömmu í Mánahlíðinni og var þar í rúma viku með Arnari Hauki.

Skátar og Klifurhúsið

Grandavegarbörnin hafa mjög ákveðnar óskir um námskeið í sumar og til allrar lukku tókst að uppfyllar allar óskir.
Ólafur Þorri fór á útilífsnámskeið hjá Ægisbúum 25.-29. júní. Þar fékk hann rauðan skátaklút sem hann bar stoltur. Námskeiðið endaði á tjaldútilegu á Úlfljótsvatni og var hamingja piltisins í feðalok mikil sem og þreyta.
Signý var sömu viku á klifurnámskeiði í Klifurhúsinu. Eins og við mátti búast skemmti hún sér mjög vel við klifur bæði innanhúss og í Öskjuhlíðinni.
Vikuna á eftir fór svo Þórdís á samskonar námskeið í Klifurhúsinu og skipuleggja þær systur núna miklar klifurferðir í sumar.

Reykjadalur

Gengum okkur niður eftir Leggjabrjót með því að taka stutt rölt inn í Reykjadal á sunnudeginum en þangað er um 3 km ganga frá Rjúpnabrekkum í Hveragerði (fylgdum rauðu stikunum).
Stutt ganga en gríðarlega falleg, útsýni stórbrotið og hverir og laugar við hvert fótmál.
Við böðuðum okkur í notalega heitum læk. Æðislegt!
Lögðum af stað í fínu veðri en svo kólnaði og hvessti og við þurftum að nota ÖLL aukaföt sem við höfðum meðferðis eftir svamlið. Ferðin tók alls um tvo og hálfan tíma svo það er fínt að fara þetta ef tíminn er stuttur. Fengum svo ís í Eden.
Tókum engar myndir þannig að ég stal þessari fínu mynd af síðu á netinu sem fjallar um náttúrulaugar.

Leggjabrjótur

Fjölskyldan gekk með VST leiðina um Leggjabrjót laugardaginn 30. júní.

Fórum með rútu frá VST og lögðum af stað frá Botnsdal um 10:40.
Fljótlega tóku krakkarnir að leiða gönguna og var rétt svo að þau fengjust til að taka umsamið hádegisstopp. Það hafðist þó og kl. 12:15 var áð efst uppi á Sandhryggnum með útsýni niður í Brynjudal. Eftir mat tók hluti hópsins smá útúrdúr rétt áður en komið var að Sandvatni niður að Skorhagafossi, en börnin gengu áfram beinustu leið og léku sér við Sandvatn á meðan. Stikluðum Súluá (sumir óðu ;-) og tókum svo stutta nestispásu stuttu eftir ármót Súluár og Öxarár. Komum í Hrútagil ca. kl. 16:15 þar sem var grillað og rútan beið eftir okkur. Frábært veður alla leiðina, stuttbuxur allan daginn en í og úr peysunum. Leiðindafluga stærstan hluta leiðarinnar, en flugnanetin redduðu því og allir komu þreyttir en ánægðir til byggða.

Fótbolti

Um leið og við komum heim frá Frakklandi fór Ólafur Þorri á Skagamótið.
Óli, Nonni og Þórdís gistu í tjaldi á Skaganum á meðan við Signý vorum í höfuðborginni.
Signý keppti síðan á fótboltamóti á Tungubökkum í Mosó á sunnudeginum en þangað komu Skagafarar að loknu þeirra móti.

2. júní 2007

Signý 10 ára

Signý Kristín náði þeim áfanga að verða 10 ára í gær, en hún fæddist 1. júní (á sjómannadeginum) árið 1997.
Við héldum afmælisveislu, þar sem öllum bekknum var boðið og var það mjög skemmtilegt.

Hér eru hinsvegar nokkrar myndir af duglegu stelpunni okkar.

Stoltur pabbi.
Signý hlaupastelpa.
Í baði með stóru systur.

Það er gott að knúsa litla bróður sinn.
Signý snjóbrettastelpa.

Signý á hana Nönnu.


Þórbergur segir að Signý sé besta fyrirsæta í heimi, en þessi mynd er tekin af honum.



Elsku Signý. Til hamingju með 10 ára afmælið.

M og P.