25. apríl 2007

Stutt í brosið

Þegar búið er að vera í fjallinu allan daginn, þá er gott að slaka á í heita pottinum hjá afa og ömmu. Þessi mynd var tekin við það tækifæri, en ástæðan fyrir brosinu er að ég hélt á Sólveigu Emblu og þá heyrðist "æææææ, óóóóóóó, íííííííí" og börnin brostu sínu breiðasta. Þetta er eitthvað sem allir ljósmyndarar ættu að gera, þ.e. að vera alltaf með lítið barn við höndina þegar þeir taka myndir af öðrum.
N.

Ps. Fyrir ykkur sunnlendinga, þá merkið það að "hafa verið í fjallinu" það sama og hafa verið á skíðum í Hlíðarfjalli. Þá getur verið gott og jafnvel nauðsynlegt að vera í loðstakk.

23. apríl 2007

Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn fyrsti. Allir ánægðir með viðurkenningar eftir víðavangshlaup. Þórdís kom fyrst kvenna í mark og fékk því veglegan bikar.

Páskafrí á Akureyri


Við vorum fyrir norðan um páskana. Veðrið var frábært og því tilvalið að vera í fjallinu eða gönguferðum í Kjarnaskógi.
N.

17. apríl 2007

Íslandsmeistarar

Hrikalega var þetta spennandi í gærkvöldi - og stemming - úff !
Flottur bikar kominn vestur í bæ.

Nú getur Grandavegurinn farið að snúa sér að því að hugsa um eitthvað annað en körfubolta, enda löngu kominn tími til.
(myndirnar fengnar af láni af mbl.is)

23. mars 2007

Góðir gestir í heimsókn á Grandaveginum

Í dag komu Ágúst og Sigurjón Óli frá USA. Í kvöldmatinn komu Lóla, Einar og krakkarnir ásamt Gunnari afa. Eftir matinn fóru börnin útá róló áður en næsta stórhríð skall á.
Núna er Ólafur Þorri uppi að lesa fyrir Sigurjón Óla fyrir svefninn.


N.

18. mars 2007

Þrengslin 18.mars 2007

Þar var bæði skyggni og færð í ágætis lagi þó allt væri stopp á heiðinni.
Þó var gott að hafa essin þrjú í huga þar sem nokkur sól var:
Sól - Skyggni - Bremsa !
já og líka essin tvö og béin tvö .... en við áttum erindi....
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4345907
Fara inn í ca. miðjan þátt. Hrein snilld.

Skólanesti

Börnin á Grandaveginum búa sér að sjálfsögðu alltaf til hollt og gott nesti á morgnana til að hafa með í skólann. Útrúlega glöggir lesendur taka etv. eftir tómu rauðvínsglasi við hlið dísarinnar og er okkur skylt að koma eftirfarandi á framfæri:
Grandavegurinn vill hvorki meðvitað né ómeðvitað tengja áfengisdrykkju við ferskleika og hollustu fyrir grunnskólabörn ...

23. febrúar 2007

Ronja klár í slaginn


Stór áfangi í lífi kisunnar okkar í dag. Fór með hana til dýralæknis þar sem gerð var "smávægileg aðgerð". Framvegis getum við óhrædd sleppt henni út, án þess að eiga á hættu að enn fjölgi dýrum á heimilinu.
Ronja stóð sig mjög vel, en var lengi að vakna eftir svæfinguna, og var auk þess mjög völt á fótunum. Eftir að hafa verið vakandi í smá stund, varð hún aftur þreytt og sofnaði ofaná heitri tölvunni með músina undir klónum.
Glöggvir áhorfendur taka etv. eftir því að búið er að klæða hana í grisjupoka. Þetta er ekki nýjasta tíska í kisufötum, heldur er þetta nauðsynlegt til að hún klóri ekki sauminn sem er eftir aðgerðina. Samtímis var sett örflaga í hnakkann, þannig að ef hún týnist, verður einfaldlega hægt að skanna hana. Fín tækni, vantar bara að setja GPS sendi í skottið.
Framvegis getur Ronja því notið lífsins án þess að þurfa að spá í nokkrar afleiðingar.

N.

21. febrúar 2007

Öskudagur

Klúður á Grandaveginum í dag.
Krakkarnir öll í flottum búningum en engar myndir teknar.
Signý var hippi og Ólafur Þorri var Ninja. Þau voru saman í liði ásamt tveimur vinkonum Signýjar. Þau byrjuðu á að fara í Kringluna og ég sótti þau þangað eftir ca. klukkutíma. Þá var farið á VST og á nokkra staði til viðbótar í Ármúlanum. Þá keyrði ég þau aftur vestur í bæ og þau enduðu á Eiðistorgi.
Þórdís var Kínverji. Hún fór á Laugarveginn með bekkjarsystrum sínum og endaði svo eins og systkinin á Eiðistorgi.
Alls staðar var tekið vel á móti þeim og þau græddu fullt af nammi og allskonar hlutum (pennum, sundtöskum, skopparaboltum....).
Nonni græddi líka fullt því að hann er búinn að fá allt "vonda" nammið.
Við verðum að muna eftir að taka myndir á næsta ári.

14. febrúar 2007

Sokkar

Sokkar eru nýjasta stóra málið hérna á Grandaveginum
Sko
Þetta byrjaði allt með því að ég strengdi áramótaheit:
“Ég heiti því hér með að hætta að ganga í götóttum sokkum”
Hljómar einfalt og ég var virkilega bjartsýn á nýársnótt enda í glænýjum sokkabuxum.
Strax daginn eftir kom þó smávegis babb í bátinn. Við vorum að fara að keyra suður og ég var ekki alveg í stemmingu fyrir nælonsokkabuxunum á leiðinni og ekkert í boði annað en sokkar með gati á tánni. Ég er hins vegar orðin svo sjóuð í götóttum sokkum að ég fer í þá þannig að götin lenda yfir litlutánum og sjást voðalega lítið fyrr en þau eru orðin mjög stór eða komin báðum megin.
Síðan þá hef ég virkilega reynt að standa við heitið. Ég fór í sokkabúðina í Kringlunni um daginn og keypti mér 5 pör af sokkum. Ég hef komið mér upp sérstakri körfu niðri í þvottahúsi fyrir staka sokka og hendi öllum götóttum sokkum í ruslið (nema ef það eru alveg sérstakir uppáhaldssokkar, þá set ég þá aftast í sokkaskúffuna).
Ég hef meira að segja gerst svo djörf að henda götóttum sokkum af krökkunum (auðvitað í skjóli myrkurs) en í morgun rann stund sannleikans upp. Óli átti enga sokka til að fara í. Morguninn fór því í mikla leit að einhverjum dulum til að hylja með tær og hæla piltsins.
Sokkar eru stórmál á Grandaveginum.
Þessir sokkar tengjast efni pistilsins ekki á nokkurn hátt. Þetta eru gatasokkar, ekki götóttir sokkar

12. febrúar 2007

Fyrsta verðlagseftirlit Grandavegarins

Ég er líklega svolítið sein í þessu. Kannski eru allar búðirnar búnar að hækka hjá sér verðið nú þegar.
Ég er samt að spá í að prófa að fylgjast með verðinu á nokkrum vörutegundum. Finn reyndar ekki neinar kassakvittanir úr Bónus þannig að ég verð bara að setja inn tölur frá þeim seinna.
Þetta er það sem ég fann á sneplunum í veskinu mínu núna:
Fáránlegt að mér hafi tekist að kaupa 1 stk græna papriku fyrir nákvæmlega sömu upphæð í Hagkaup og Nóatúni.

11. febrúar 2007

Helgarsportið

Eins og venjulega var nóg um að vera á íþróttasviðinu hjá Grandavegarbörnunum um helgina.
Á laugardaginn var leikið í körfunni í Reykjavíkurmóti 11 ára stúlkna. Systurnar spiluðu þar í fyrsta skipti (að því er við best munum) saman liði í opinberum leik.Stelpnalið MB11 ára KR. Efri röð frá vinstri: Þórdís, Sigga, Ólöf, Sóley, María og Katrín. Neðri röð: Salvör og Signý, Kristín Þöll, Guðrún og Sólbjörg
Þrátt fyrir kraftmikinn leik KR stúlknanna tapaðist úrslitaleikurinn á móti Fjölni. Framfarir liðsins hafa hins vegar verið mjög miklar í vetur og virkilega gaman að sjá hversu vel þær eru farnar að spila saman.
Óli Ásgeir þjálfari leggur línurnar fyrir síðasta leikhlutann á móti Fjölnisstelpunum.
Þegar við komum heim eftir körfuboltann var búið til kúfað fat af ekta grautarlummum sem við átum með sírópi. Svo mikið var etið að kvöldmatur frestaðist til að verða 9 (veit þetta er ótrúlegt, en það gerðist nú samt!!!).
Í dag fórum við svo upp á Skaga þar sem Ólafur Þorri keppti í fótbolta. Spilaðir voru 4 leikir og stóðu KR-ingarnir sig mjög vel. Okkar maður skoraði 4 af 7 eða 8 mörkum liðsins og var að vonum stoltur eftir mótið

8. febrúar 2007

Flugdrekahlauparinn

Aðfaranótt sunnudagsins síðasta dreif ég loksins í að lesa Flugdrekahlauparann eftir Khaled Hosseini. Hef lengi ætlað að lesa hana og stakk henni loksins með í matarkörfuna í Nóatúni á laugardaginn.
Mæli ég með því við þá örfáu lesendur fréttasíðu Grandavegarins sem ekki eru búnir að lesa bókina að gera það.
Sögusviðið er Afganistan fram að því er Sovétmenn ráðast inn í landið, innflytjendasamfélag Afgana í Bandaríkjunum og síðar Afganistan undir stjórn Talíbana.
Sagan er verulega áhrifarík og átakanleg og ég gat ekki hætt lestrinum fyrr en ég var búin með bókina. Maður finnur til bæði mikillar samúðar og reiði gagnvart söguhetjunni Amir, þó að segja megi að eftirminnilegustu persónurnar séu Hassan vinur Amirs og skíthællinn og sadistinn Assaf. Atvikið sem er lykilatriði sögunnar er síðan svo skelfilegt og á sama tíma svo táknrænt og lýsandi fyrir mannlegt eðli í skugga ógnar að það gleymist ekki.

7. febrúar 2007

Enn eykst fjölbreytileiki dýralífsins á Grandaveginum

Í veikindum mínum síðustu daga hef ég setið löngum stundum við tölvuna og stjórnast í vinnufélögum mínum í gegnum tölvupóst og síma.
Þar sem einbeitingin í vinnunni er ekki alveg í botni þá horfi ég töluvert mikið út um borðstofugluggann góða, með tebollla í hönd og virði fyrir mér útsýnið.
Á þessu glápi mínu hef ég komist að því að gæsirnar sem við höfum séð hérna á lóðinni okkar öðru hverju, eru bara alls ekki hérna öðru hverju, heldur alltaf.
Þessar þrjár þéttholda gæsir eiga heima hérna og eru því óumflýjanlega hluti af lífríki Grandavegarins.
Nú spyr ég: Verð ég að fóðra gæsirnar ? Á ég annars á hættu að verða kærð fyrir 111 meðferð á dýrum ?
Nú mæna þær á mig hugruðum augum. Þær laumast áreiðanlega í burtu til að éta þegar ég sé ekki til, bölvaðir bústnu hræsnararnir.

Aldrei fór ég norður

Komumst ekki í fjallið um helgina eins og við höfðum ætlað okkur.

Flensan kom í heimsókn til okkar. Hitti Ólaf Þorra á miðvikudaginn og Signýju á fimmtudaginn. Fyrir Óla var hún með háan hita, ofskynjanir og skítakvef meðferðis, en Signý fékk bara háan hita og skítakvef. Flensan hitti ekki Þórdísi fyrr en seinnipart laugardags og átti þá eftir eitthvað lítið af gjöfum þannig að Þórdís fékk bara kvef. Við flensan hittumst hins vegar ekki fyrr en á sunnudagskvöldinu og þá var hún búin að byrgja sig upp aftur og gaf mér hita og skítakvef.
Nonni er búinn að ná að forðast þennann óboðna gest og hefur engar gjafir þegið af honum.
Signý og Þórdís fóru í skólann í gær, Ólafur Þorri í dag og ég ætla í vinnuna á morgun.

Signý í íþróttafréttum stöðvar 2

Hérna er tengill inn á íþróttafréttirnar hjá stöð 2 þar sem sýnd er glæsileg karfa sem Signý skoraði á KEA-skyrmótinu hjá Breiðablik um þar síðustu helgi.
Til að finna þennan part fréttarinnar þarf að stilla tímasleðann á 01:07:30.
Við Nonni erum svo í aðalhlutverki í fréttinni (01:07:15) þegar fréttamaðurinn talar um að hegðun foreldra hafi verið til fyrirmyndar ;-).

5. febrúar 2007

Flensa klensa

Flensan ákvað að hafa viðkomu á Grandaveginum þetta árið.

26. janúar 2007

Reykjavíkurmeistarar

Signý og Þórdís urðu um helgina Reykjavíkurmeistarar í köfubolta ásamt félögum sínum í KR.
Lið Signýjar sigraði í C-deild Minnibolta stráka á laugardaginn og lið Þórdísar í 7. flokki stúlkna á sunnudaginn.
Áður hafði Signý unnið til silfurverðlauna í Minnibolta stúlkna B-deild (þau verðlaun hafa hins vegar einhverra hluta vegna ekki borist verðlaunahöfunum).
Þórdís keppir svo í Reykjavíkurmótinu í Minnibolta stúlkna A-deild 10. febrúar.

Signý ásamt félögum sínum í 9 ára liðinu með gullverðlaun og bikar.
Myndina tók Jónas Snæbjörnsson

Þórdís með gullverðlaun og bikar
Myndina tók Ágúst Hrafnkelsson


Núna helgina 27.-28. janúar verður fjölskyldan svo stödd í Smáranum í Kópavogi þar sem allir krakkarnir verða að keppa á KEA-skyrmóti Breiðabliks. Í lok febrúar er svo þriðja umferðin í Íslandsmótinu þannig að það er nóg framundan hjá systkinunum í sportinu og foreldrunum í klappliðinu.

19. janúar 2007

Signý dregur björg í bú

Það kom að því að þetta körfuboltabrölt barnanna myndi skila einhverju ...
http://www.kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=257981

Myndina tók Stefán Helgi Valsson

(tekið af heimasíðu KR www.kr.is/karfa)

Á síðunni er líka frétt frá Reykjavíkurmótinu um síðustu helgi þar sem 9 ára stelpurnar kepptu við Fjölni og stóðu sig mjög vel.

www.kr.is/karfa/frettir/?ew_news_onlyarea=content1&ew_news_onlyposition=0&cat_id=17408&ew_0_a_id=256993

4. janúar 2007

Gleðilegt ár

Og takk fyrir það gamla.