7. febrúar 2007

Enn eykst fjölbreytileiki dýralífsins á Grandaveginum

Í veikindum mínum síðustu daga hef ég setið löngum stundum við tölvuna og stjórnast í vinnufélögum mínum í gegnum tölvupóst og síma.
Þar sem einbeitingin í vinnunni er ekki alveg í botni þá horfi ég töluvert mikið út um borðstofugluggann góða, með tebollla í hönd og virði fyrir mér útsýnið.
Á þessu glápi mínu hef ég komist að því að gæsirnar sem við höfum séð hérna á lóðinni okkar öðru hverju, eru bara alls ekki hérna öðru hverju, heldur alltaf.
Þessar þrjár þéttholda gæsir eiga heima hérna og eru því óumflýjanlega hluti af lífríki Grandavegarins.
Nú spyr ég: Verð ég að fóðra gæsirnar ? Á ég annars á hættu að verða kærð fyrir 111 meðferð á dýrum ?
Nú mæna þær á mig hugruðum augum. Þær laumast áreiðanlega í burtu til að éta þegar ég sé ekki til, bölvaðir bústnu hræsnararnir.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ. Fínt blogg hjá þér Mamma.
Ef einhver veit ekki hvað 111. meðferð er þá er það ill meðferð á dýrum.
Sko snillann !!!

Nafnlaus sagði...

Ekki mundi ég taka sénsinn á að fóðra gæsirnar þrátt fyrir reglugerð 111 um meðferð á dýrum. Ég yrði nefnilega alveg viss um að þá kæmu sennilega frændur og frænkur þeirra líka og þá yrði nú bara rifist um bitana. Það hlýtur því líka að vara til reglur nr eitthvað sem segja að ekki megi stuðla að slagsmálum dýra.....ég mund nýta mér það í þínum sporum ;c)

Nafnlaus sagði...

já, það að stuðla að slagsmálum dýra hlýtur auðvitað líka að flokkast undir 111. meðferð á dýrum

Jóhanna sagði...

Já, bévítans fiðurfénaðurinn lætur ekki að sér hæða. Gefðu bara gæsakyttum veiðileyfi á óðalsjörð þinni og málið er leyst.

Lóla