8. febrúar 2007

Flugdrekahlauparinn

Aðfaranótt sunnudagsins síðasta dreif ég loksins í að lesa Flugdrekahlauparann eftir Khaled Hosseini. Hef lengi ætlað að lesa hana og stakk henni loksins með í matarkörfuna í Nóatúni á laugardaginn.
Mæli ég með því við þá örfáu lesendur fréttasíðu Grandavegarins sem ekki eru búnir að lesa bókina að gera það.
Sögusviðið er Afganistan fram að því er Sovétmenn ráðast inn í landið, innflytjendasamfélag Afgana í Bandaríkjunum og síðar Afganistan undir stjórn Talíbana.
Sagan er verulega áhrifarík og átakanleg og ég gat ekki hætt lestrinum fyrr en ég var búin með bókina. Maður finnur til bæði mikillar samúðar og reiði gagnvart söguhetjunni Amir, þó að segja megi að eftirminnilegustu persónurnar séu Hassan vinur Amirs og skíthællinn og sadistinn Assaf. Atvikið sem er lykilatriði sögunnar er síðan svo skelfilegt og á sama tíma svo táknrænt og lýsandi fyrir mannlegt eðli í skugga ógnar að það gleymist ekki.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Les hana kannski....

Jóhanna sagði...

Heyrðu, ég verð að fá hana lánaða hjá þér. Sæki hana um leið og ég sæki pokann með böngsunum og kanínunum ;-)

Lóla

Nafnlaus sagði...

Tengdamamma er með bókina núna en hún er hraðlesari þannig að þú getur áreiðanlega fengið hana mjög fljótlega.