Fyrsta verðlagseftirlit Grandavegarins
Ég er líklega svolítið sein í þessu. Kannski eru allar búðirnar búnar að hækka hjá sér verðið nú þegar.
Ég er samt að spá í að prófa að fylgjast með verðinu á nokkrum vörutegundum. Finn reyndar ekki neinar kassakvittanir úr Bónus þannig að ég verð bara að setja inn tölur frá þeim seinna.
Þetta er það sem ég fann á sneplunum í veskinu mínu núna:
Ég er samt að spá í að prófa að fylgjast með verðinu á nokkrum vörutegundum. Finn reyndar ekki neinar kassakvittanir úr Bónus þannig að ég verð bara að setja inn tölur frá þeim seinna.
Þetta er það sem ég fann á sneplunum í veskinu mínu núna:
Fáránlegt að mér hafi tekist að kaupa 1 stk græna papriku fyrir nákvæmlega sömu upphæð í Hagkaup og Nóatúni.
6 ummæli:
Já ótrúlegt, en satt.
Ég var að versla fjórar sambærilegar vörur af þessum lista hérna í dk í dag, læt verðið fylgja svona til gamans.
Léttmjólk 1L 53 íkr.
Fjörmjólk 1L 48 íkr.
15 egg 180 íkr. (ath 15 stk!!)
Agúrka 1 stk.107 íkr
Gaman að sjá verðið heima og á hverju við eigum von í apríl þegar við komum ;)
Bestu kveðjur, Hafdís
Eru paprikurnar seldar í stykkjatali heima eða eftir vigt?
Ég ætla nú ekkert að vera að hrella þig með hryllingssögum úr kjörbúðunum hérna rétt norðan við Disneyland. Það er jú skítbillegt, en maður fær nú líka ýmislegt með í kaupunum sem var ekki á óskalistanum. Ég reyni nú að kaupa lífrænt ræktað eins og hægt er og það hjálpar aðeins :)
Nei, - grænmeti og ávextir er ennþá selt skv. kílóverði (eins og þegar þú varst í grænmetisborðinu í Hrísalundi!). Hins vegar vandist ég stykkjaverðshugsuninni í DK (en þar er þetta meira og minna allt selt í stykkjatali) og hef ENGA tilfinningu fyrir kílóverði whatsoever. Allt grænmetið á listanum var í meðalstærð þannig að ég held að verðið sé sæmilega samanburðarhæft á milli "rannsókna".
Gaman að sjá danska verðið aftur. Gúrkan er á svipuðu verði en restin er töluvert ódýrari hjá þér Hafdís.
Mér sýnist þú hafa prýðilega tilfinningu fyrir kílóverði á papriku. Alla vega á grænni papriku ;-)
Skrifa ummæli