23. febrúar 2007

Ronja klár í slaginn


Stór áfangi í lífi kisunnar okkar í dag. Fór með hana til dýralæknis þar sem gerð var "smávægileg aðgerð". Framvegis getum við óhrædd sleppt henni út, án þess að eiga á hættu að enn fjölgi dýrum á heimilinu.
Ronja stóð sig mjög vel, en var lengi að vakna eftir svæfinguna, og var auk þess mjög völt á fótunum. Eftir að hafa verið vakandi í smá stund, varð hún aftur þreytt og sofnaði ofaná heitri tölvunni með músina undir klónum.
Glöggvir áhorfendur taka etv. eftir því að búið er að klæða hana í grisjupoka. Þetta er ekki nýjasta tíska í kisufötum, heldur er þetta nauðsynlegt til að hún klóri ekki sauminn sem er eftir aðgerðina. Samtímis var sett örflaga í hnakkann, þannig að ef hún týnist, verður einfaldlega hægt að skanna hana. Fín tækni, vantar bara að setja GPS sendi í skottið.
Framvegis getur Ronja því notið lífsins án þess að þurfa að spá í nokkrar afleiðingar.

N.

4 ummæli:

Jóhanna sagði...

Bestu batakveðjur til Ronju frá okkur á Kanarí.

Nafnlaus sagði...

Bestu kveðjur héðan úr Sønderborginni, þar sem er ekkert ungdomshus sem betur fer hehe
Hafdís

Nafnlaus sagði...

Verð nú bara að viðurkenna að ég vissi ekki að þið væruð komin með nýja bloggsíðu ;) Bæti ykkur hér með inn í bloggrúntinn minn :)

Kv. Anna Kristín

Nafnlaus sagði...

Góða helgi.
Kveðja Hafdís