Öskudagur
Klúður á Grandaveginum í dag.
Krakkarnir öll í flottum búningum en engar myndir teknar.
Signý var hippi og Ólafur Þorri var Ninja. Þau voru saman í liði ásamt tveimur vinkonum Signýjar. Þau byrjuðu á að fara í Kringluna og ég sótti þau þangað eftir ca. klukkutíma. Þá var farið á VST og á nokkra staði til viðbótar í Ármúlanum. Þá keyrði ég þau aftur vestur í bæ og þau enduðu á Eiðistorgi.
Þórdís var Kínverji. Hún fór á Laugarveginn með bekkjarsystrum sínum og endaði svo eins og systkinin á Eiðistorgi.
Alls staðar var tekið vel á móti þeim og þau græddu fullt af nammi og allskonar hlutum (pennum, sundtöskum, skopparaboltum....).
Nonni græddi líka fullt því að hann er búinn að fá allt "vonda" nammið.
Við verðum að muna eftir að taka myndir á næsta ári.
3 ummæli:
Nonni, bara muna að passa línurnar!! Ef að þú átt í einhverjum vandræðum með "vonda nammið" þá býð ég hér með fram mína hjálp :)
Hæ Kolla,
já ég má alls ekki fara yfir 95 kg. og því er þetta komið á ystu nöf.
Þú mátt búast við að fá farma af alls kyns hnetusúkkulaði og útrunnu kaffikexi sem börnin vildu ekki.
Kv. Nonni.
Vá, þið eruð bara búin að skrifa brjálað síðan ég kíktí síðast phew!!!!! Það er gott mál en hitt er verra þetta með myndaleysið, heimasætan á þessum bænum hefði alveg verið til í að sjá frændsystkin sín uppdressuð, en það gengur bara betur næst, það er fyrir mestu að allir skemmtu sér vel :o) Kveðja, Kolbrún
Skrifa ummæli