11. desember 2007

Krulluliðið á Evrópumótinu

Þessi föngulegi hópur kom heim af Evrópumótinu í krullu á sunnudaginn. Árangurinn í mótinu var kannski ekki alveg eins góður og bjartsýnustu menn höfðu vonast eftir. Liðið lék 6 leiki og tapaði þeim öllum, en þeir náðu samt aðeins að bíta frá sér í nokkrum leikjanna þrátt fyrir töpin.
Velkominn heim aftur Pabbi/Afi - við erum mjög montin af "landsliðsþjálfaranum" okkar.

2 ummæli:

Jóhanna sagði...

Þetta er glæsilegt krullulið. Við erum líka stolt af "strákunum okkar".

Nafnlaus sagði...

Ég held þið séuð að gera grín að mér.