9. mars 2008

Samkaupsmótið 2008

Þá er skemmtilegasta körfuboltamóti ársins lokið. Óli og Signý tóku þátt og skemmtu sér mjög vel. Sindri var einnig að keppa fyrir Fjölni og við náðum að fylgjast með leik hjá honum.
Þórdís er orðin einu ári of gömul fyrir þetta mót og fylgdist því með á laugardaginn en skellti sér á bretti í dag með vinkonu sinni. Það gekk mjög vel, nema hún var keyrð niður (af einhverjum sem ekki fór varlega í þokunni) og handleggsbrotnaði (sem betur fer ekki illa) og verður með gips næstu 2-3 vikurnar.
Þetta var semsagt körfubolta og skíðahelgi.
f
f

Signý í baráttu við Njarðvíkurstúlkur.

Lalli að leggja strákunum línurnar í síðasta leiknum gegn Njarðvík.

Það var fallegt veður um helgina.


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bestu kveðjur til körfuboltasystkinanna.

Og batakveðjur til Þórdísar.

Lóla

Bebba sagði...

Hæjó ;) Ég get náttúrulega ekki þagað lengi þannig að ég er komin á nýjan stað, bara fyrir VIP ;) -Ég skal gefa ykkur VIP passa :)

123.is/ber

-Ég fer svo að koma með Sex and the City, er ykkur ekki farið að leiðast? :D