23. febrúar 2007
21. febrúar 2007
Öskudagur
Klúður á Grandaveginum í dag.
Krakkarnir öll í flottum búningum en engar myndir teknar.
Signý var hippi og Ólafur Þorri var Ninja. Þau voru saman í liði ásamt tveimur vinkonum Signýjar. Þau byrjuðu á að fara í Kringluna og ég sótti þau þangað eftir ca. klukkutíma. Þá var farið á VST og á nokkra staði til viðbótar í Ármúlanum. Þá keyrði ég þau aftur vestur í bæ og þau enduðu á Eiðistorgi.
Þórdís var Kínverji. Hún fór á Laugarveginn með bekkjarsystrum sínum og endaði svo eins og systkinin á Eiðistorgi.
Alls staðar var tekið vel á móti þeim og þau græddu fullt af nammi og allskonar hlutum (pennum, sundtöskum, skopparaboltum....).
Nonni græddi líka fullt því að hann er búinn að fá allt "vonda" nammið.
Við verðum að muna eftir að taka myndir á næsta ári.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
22:02
3
að tjá sig
14. febrúar 2007
Sokkar
Sokkar eru nýjasta stóra málið hérna á Grandaveginum
Sko
Þetta byrjaði allt með því að ég strengdi áramótaheit:
“Ég heiti því hér með að hætta að ganga í götóttum sokkum”
Hljómar einfalt og ég var virkilega bjartsýn á nýársnótt enda í glænýjum sokkabuxum.
Strax daginn eftir kom þó smávegis babb í bátinn. Við vorum að fara að keyra suður og ég var ekki alveg í stemmingu fyrir nælonsokkabuxunum á leiðinni og ekkert í boði annað en sokkar með gati á tánni. Ég er hins vegar orðin svo sjóuð í götóttum sokkum að ég fer í þá þannig að götin lenda yfir litlutánum og sjást voðalega lítið fyrr en þau eru orðin mjög stór eða komin báðum megin.
Síðan þá hef ég virkilega reynt að standa við heitið. Ég fór í sokkabúðina í Kringlunni um daginn og keypti mér 5 pör af sokkum. Ég hef komið mér upp sérstakri körfu niðri í þvottahúsi fyrir staka sokka og hendi öllum götóttum sokkum í ruslið (nema ef það eru alveg sérstakir uppáhaldssokkar, þá set ég þá aftast í sokkaskúffuna).
Ég hef meira að segja gerst svo djörf að henda götóttum sokkum af krökkunum (auðvitað í skjóli myrkurs) en í morgun rann stund sannleikans upp. Óli átti enga sokka til að fara í. Morguninn fór því í mikla leit að einhverjum dulum til að hylja með tær og hæla piltsins.
Sokkar eru stórmál á Grandaveginum.
Þessir sokkar tengjast efni pistilsins ekki á nokkurn hátt. Þetta eru gatasokkar, ekki götóttir sokkar
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
18:12
4
að tjá sig
12. febrúar 2007
Fyrsta verðlagseftirlit Grandavegarins
Ég er samt að spá í að prófa að fylgjast með verðinu á nokkrum vörutegundum. Finn reyndar ekki neinar kassakvittanir úr Bónus þannig að ég verð bara að setja inn tölur frá þeim seinna.
Þetta er það sem ég fann á sneplunum í veskinu mínu núna:
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
15:52
6
að tjá sig
11. febrúar 2007
Helgarsportið
Eins og venjulega var nóg um að vera á íþróttasviðinu hjá Grandavegarbörnunum um helgina.
Á laugardaginn var leikið í körfunni í Reykjavíkurmóti 11 ára stúlkna. Systurnar spiluðu þar í fyrsta skipti (að því er við best munum) saman liði í opinberum leik.
Stelpnalið MB11 ára KR. Efri röð frá vinstri: Þórdís, Sigga, Ólöf, Sóley, María og Katrín. Neðri röð: Salvör og Signý, Kristín Þöll, Guðrún og Sólbjörg
Þrátt fyrir kraftmikinn leik KR stúlknanna tapaðist úrslitaleikurinn á móti Fjölni. Framfarir liðsins hafa hins vegar verið mjög miklar í vetur og virkilega gaman að sjá hversu vel þær eru farnar að spila saman.
Óli Ásgeir þjálfari leggur línurnar fyrir síðasta leikhlutann á móti Fjölnisstelpunum.
Þegar við komum heim eftir körfuboltann var búið til kúfað fat af ekta grautarlummum sem við átum með sírópi. Svo mikið var etið að kvöldmatur frestaðist til að verða 9 (veit þetta er ótrúlegt, en það gerðist nú samt!!!).
Í dag fórum við svo upp á Skaga þar sem Ólafur Þorri keppti í fótbolta. Spilaðir voru 4 leikir og stóðu KR-ingarnir sig mjög vel. Okkar maður skoraði 4 af 7 eða 8 mörkum liðsins og var að vonum stoltur eftir mótið
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
23:40
0
að tjá sig
8. febrúar 2007
Flugdrekahlauparinn
Aðfaranótt sunnudagsins síðasta dreif ég loksins í að lesa Flugdrekahlauparann eftir Khaled Hosseini. Hef lengi ætlað að lesa hana og stakk henni loksins með í matarkörfuna í Nóatúni á laugardaginn.
Mæli ég með því við þá örfáu lesendur fréttasíðu Grandavegarins sem ekki eru búnir að lesa bókina að gera það.
Sögusviðið er Afganistan fram að því er Sovétmenn ráðast inn í landið, innflytjendasamfélag Afgana í Bandaríkjunum og síðar Afganistan undir stjórn Talíbana.
Sagan er verulega áhrifarík og átakanleg og ég gat ekki hætt lestrinum fyrr en ég var búin með bókina. Maður finnur til bæði mikillar samúðar og reiði gagnvart söguhetjunni Amir, þó að segja megi að eftirminnilegustu persónurnar séu Hassan vinur Amirs og skíthællinn og sadistinn Assaf. Atvikið sem er lykilatriði sögunnar er síðan svo skelfilegt og á sama tíma svo táknrænt og lýsandi fyrir mannlegt eðli í skugga ógnar að það gleymist ekki.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:22
3
að tjá sig
7. febrúar 2007
Enn eykst fjölbreytileiki dýralífsins á Grandaveginum
Í veikindum mínum síðustu daga hef ég setið löngum stundum við tölvuna og stjórnast í vinnufélögum mínum í gegnum tölvupóst og síma.
Þar sem einbeitingin í vinnunni er ekki alveg í botni þá horfi ég töluvert mikið út um borðstofugluggann góða, með tebollla í hönd og virði fyrir mér útsýnið.
Á þessu glápi mínu hef ég komist að því að gæsirnar sem við höfum séð hérna á lóðinni okkar öðru hverju, eru bara alls ekki hérna öðru hverju, heldur alltaf.
Þessar þrjár þéttholda gæsir eiga heima hérna og eru því óumflýjanlega hluti af lífríki Grandavegarins.
Nú spyr ég: Verð ég að fóðra gæsirnar ? Á ég annars á hættu að verða kærð fyrir 111 meðferð á dýrum ?
Nú mæna þær á mig hugruðum augum. Þær laumast áreiðanlega í burtu til að éta þegar ég sé ekki til, bölvaðir bústnu hræsnararnir.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
11:55
4
að tjá sig
Aldrei fór ég norður
Komumst ekki í fjallið um helgina eins og við höfðum ætlað okkur.
Flensan kom í heimsókn til okkar. Hitti Ólaf Þorra á miðvikudaginn og Signýju á fimmtudaginn.
Fyrir Óla var hún með háan hita, ofskynjanir og skítakvef meðferðis, en Signý fékk bara háan hita og skítakvef.
Flensan hitti ekki Þórdísi fyrr en seinnipart laugardags og átti þá eftir eitthvað lítið af gjöfum þannig að Þórdís fékk bara kvef. Við flensan hittumst hins vegar ekki fyrr en á sunnudagskvöldinu og þá var hún búin að byrgja sig upp aftur og gaf mér hita og skítakvef.
Nonni er búinn að ná að forðast þennann óboðna gest og hefur engar gjafir þegið af honum.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
09:28
0
að tjá sig
Signý í íþróttafréttum stöðvar 2
Hérna er tengill inn á íþróttafréttirnar hjá stöð 2 þar sem sýnd er glæsileg karfa sem Signý skoraði á KEA-skyrmótinu hjá Breiðablik um þar síðustu helgi.
Til að finna þennan part fréttarinnar þarf að stilla tímasleðann á 01:07:30.
Við Nonni erum svo í aðalhlutverki í fréttinni (01:07:15) þegar fréttamaðurinn talar um að hegðun foreldra hafi verið til fyrirmyndar ;-).
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
08:51
0
að tjá sig
5. febrúar 2007
26. janúar 2007
Reykjavíkurmeistarar
Signý og Þórdís urðu um helgina Reykjavíkurmeistarar í köfubolta ásamt félögum sínum í KR.
Lið Signýjar sigraði í C-deild Minnibolta stráka á laugardaginn og lið Þórdísar í 7. flokki stúlkna á sunnudaginn.
Áður hafði Signý unnið til silfurverðlauna í Minnibolta stúlkna B-deild (þau verðlaun hafa hins vegar einhverra hluta vegna ekki borist verðlaunahöfunum).
Þórdís keppir svo í Reykjavíkurmótinu í Minnibolta stúlkna A-deild 10. febrúar.
Signý ásamt félögum sínum í 9 ára liðinu með gullverðlaun og bikar.Myndina tók Jónas Snæbjörnsson
Þórdís með gullverðlaun og bikar Myndina tók Ágúst Hrafnkelsson
Núna helgina 27.-28. janúar verður fjölskyldan svo stödd í Smáranum í Kópavogi þar sem allir krakkarnir verða að keppa á KEA-skyrmóti Breiðabliks. Í lok febrúar er svo þriðja umferðin í Íslandsmótinu þannig að það er nóg framundan hjá systkinunum í sportinu og foreldrunum í klappliðinu.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:51
0
að tjá sig
19. janúar 2007
Signý dregur björg í bú
Það kom að því að þetta körfuboltabrölt barnanna myndi skila einhverju ...
http://www.kr.is/karfa/frettir/?cat_id=16500&ew_0_a_id=257981
Myndina tók Stefán Helgi Valsson
(tekið af heimasíðu KR www.kr.is/karfa)
Á síðunni er líka frétt frá Reykjavíkurmótinu um síðustu helgi þar sem 9 ára stelpurnar kepptu við Fjölni og stóðu sig mjög vel.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
09:42
5
að tjá sig
4. janúar 2007
Áramótin
Mennirnir sem sáu um mat og drykk kátir í eldhúsinuBeðið eftir matnum
Forrétturinn kominn á borðið
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
09:08
0
að tjá sig
3. janúar 2007
Aðventukransinn
Vessogú - hérna er hún.
Skrifaði
g.
klukkan
15:09
0
að tjá sig
2. janúar 2007
Tombóla til styrktar SOS barnaþorpunum
Í upphafi jólafrísins héldu systkinin ásamt Salvöru vinkonu Signýjar og Magnúsi vini Ólafs Þorra "tombólu" úti á Eiðistorgi þar sem þau seldu ýmsa dýrgripi til styrktar SOS barnaþorpunum. Fyrst fóru þau í göngutúr um hverfið og bönkuðu upp á hjá nágrönnunum til að safna dóti og myndin er tekin þegar dótið var flokkað og því raðað í kassa í kjallaranum okkar áður en þau fóru að selja. Það gekk rosalega vel að selja en samt voru það ennþá fleiri sem styktu málefnið án þess að þurfa að taka með sér eitthvert dót heim. Við fórum svo fyrir jól og afhentum peningana (12 þús. krónur að mig minnir) á skrifstofu SOS og fengu krakkarnir jólasveinahúfur og jólamerkimiða fyrir dugnaðinn.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
15:59
0
að tjá sig
Undirbúningur jólanna á Grandaveginum
Húsmóðirin klippti niður greni og vafði því um hálmhring. Systkinin skreyttu svo herlegheitin í kringum þemað "snjór". Allt voða "pro". Skil ekki af hverju aldrei var tekin mynd af afrakstrinum - snjókúluaðventukransinum.......
Svo heimsóttu systkinin úr Hrísrimanum okkur og hjálpuðu til við piparkökuskreytingar. Það var líka mjög listrænt.Okkur hafði borist sms með "tips" frá ráðagóða vinnufélaganum um að eyrnapinnar væru algjörlega málið í piparkökumálun.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
15:50
0
að tjá sig
Útvegsspilið
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
15:46
0
að tjá sig
