Jósefína og Húgó
Höfum verið að lesa Jósefínubækurnar eftir Maríu Gripe undanfarið. Hef lesið svona kafla og kafla fyrir krakkana á kvöldin en svo tókum við þetta af meiri krafti í vetrarfríinu og kúrðum okkur uppi í rúmi á morgnana og lásum nokkra kafla í einu.
Mæli með að allir rifji upp þessar bækur með börnunum sínum (eða án þeirra - þær standa sko líka alveg fyrir sínu í fullorðinsheiminum).
Maria Gripe, sem er nýlega látin, skrifaði 36 bækur sem voru þýddar á fjölmörg tungumál og er talin með afkastamestu rithöfundum Svíþjóðar. Ætli ég fái ekki Elvis bækurnar lánaðar á bókasafninu næst til að lesa.
2 ummæli:
mmmm... ég las þessar bækur í tætlur hérna í denn. Greinilega kominn tími á að taka þær aftur upp.
Lóla
Já, ekki spurning - þær eru algjörlega meiriháttar - sérstaklega til að lesa upphátt á dimmum haustkvöldum.
Skrifa ummæli