Í tilefni af degi íslenskrar tungu og 200 ára afmæli Jónasar þá finnst mér þetta við hæfi
Ég er því miður ekki ennþá komin með nægan þroska til að kunna almennilega að meta kveðskap Jónasar, en ég hef hins vegar, eins og Amma, afskaplega gaman af þessari sögu. 
Þegar drottningin á Englandi fór í orlof sitt
2 ummæli:
Aha, ég man eftir því að amma hafi lesið þessa sögu fyrir okkur - eða kann hún hana kannski utanað? Það kæmi ekki á óvart.
Annars þá er Egill Helgason ekki kominn með nægan þroska til að meta þessa sögu, eins og hægt er að lesa hér
http://eyjan.is/silfuregils/2007/11/16/gomul-fyndni/
Ja, hún kann amk. byrjunina utanað.
Hvað sem EH segir þá finnst mér þessi saga fín - brandararnir eldast kannski ekkert endilega svo vel ("lesa 7 ára gamlan Skírni" hahaha...) en sagan sjálf er rosa krúttlegt háð - viðmiðin hjá manni eru alltaf bundin við veröldina sem maður þekkir.
Ég á hins vegar aðeins erfitt með að sjá fyrir mér hversu skemmtileg þessi saga er sem leikþáttur ...
Skrifa ummæli