Urriðafossvirkjun
Ég hef alltaf verið mikill virkjanasinni. Verið ánægður með allar þær vatnsaflsvirkjanir sem byggðar hafa verið á hálendinu undanfarna áratugi. Sumarið 2005, fórum við fjölskyldan í ferðalag austur að Kárahnjúkum til að skoða stífluna sem þá var í byggingu. Þá þegar hafði ég verulegar efasemdir um að virkjunin væri það mikilvæg að fórna bæri þessari náttúru sem færi undir lón. Við byrjuðum á að stansa í upplýsingamiðstöð virkjunarinnar í Végarði, en þar var mjög gott yfirlitskort af svæðinu í þrívídd. Börnin fengu litabækur og blöðrur og voru algerlega sannfærð um nauðsyn þess að fá virkjun á þennan stað.
Það er bannað að merkja textann !
Áfram var haldið og það var sérlega gott veður þegar við komum á útsýnisstað virkjunarinnar, á Sandfelli. Þaðan sást vel yfir framkvæmdarsvæðið og góðar skýringarmyndir blöstu við. Smíði stíflunar var langt komin en Jökulsá á Dal rann enn óhindruð sína leið.
Neðar við ána, höfðu mótmælendur komið sér fyrir. Við gengum til þeirra og fengum útskýringar og bæklinga, þar sem þeirra sýn á málið kom fram. Tjaldbúðir þeirra voru á einstaklega fallegum stað uppi í hlíðinni gegnt Sauðárfossi. Þegar við útskýrðum fyrir börnunum að allt það svæði þar sem við stóðum á, myndi fara á kaf, þá rann á þau tvær grímur.
Neðar við ána, höfðu mótmælendur komið sér fyrir. Við gengum til þeirra og fengum útskýringar og bæklinga, þar sem þeirra sýn á málið kom fram. Tjaldbúðir þeirra voru á einstaklega fallegum stað uppi í hlíðinni gegnt Sauðárfossi. Þegar við útskýrðum fyrir börnunum að allt það svæði þar sem við stóðum á, myndi fara á kaf, þá rann á þau tvær grímur.
f
Það sem fyrir augu okkar bar var í engu samræmi við það sem Landsvirkjun hafði haldið fram. Svæðið var meira og minna gróið og sérlega fallegt. Vissulega má segja að vitneskjan um að svæðið myndi hverfa, hafi gert það á einhvern hátt dýrmætara og sérstæðara. Ég sannfærðist á þessum stað um að þetta væri ekki þess virði. Sumir myndu eflaust segja að þetta væri einfaldlega barnalegt og má vera að það sé rétt. Þetta voru engu að síður mín viðbrögð. Þessu landi mátti ekki fórna fyrir þau megavött sem voru í boði, fyrir það álver sem átti að rísa, fyrir þann gífurlega hagvöxt sem við landsmenn myndu fá, fyrir þá auknu hamingju sem þessi virkjun átti að færa okkur. Eða hvað ?
f
f
Langt er síðan hugmyndir um Urriðafossvirkjun komu fram og má segja að virkjunin sé eðlilegt framhald af þeim virkjunum sem eru ofar í ánni. Með Holta-, Hvamms og Urriðafossvirkjunum má segja að Þjórsáin sé nánast orðin fullvirkjuð. Sem kunnugt er þá hafa þó nokkrar deilur staðið um þessar virkjanir. Ég hef verið einlæglega á móti Urriðafossvirkjun, bæði vegna þess að með henni hverfur fossinn, en einnig vegna þeirrar áhættu sem hún hefur í för með sér. Fjölmargt fleira mætti tína til sem ókosti, en ekki verður farið nánar útí það hér.
f
Nú hefur verið kynnt ófullgert áhættumat fyrir virkjunina. Ljóst er að áhættan af stíflurofi er mun minni en menn gerðu sér í hugarlund. Þetta eru góðar fréttir fyrir virkjunarsinna og ættu einnig að vera góðar fréttir fyrir þá sem ekki vilja virkja. Það er hinsvegar svo að í því stríði sem nú er háð um Urriðafossvirkjun, þá er allt notað og erfitt að átta sig á hvað er rétt og rangt.
Ég sagði ekki merkja textann....
Ég sagði ekki merkja textann....
Sveitastjórn Flóahrepps hefur nú samþykkt að setja virkjunina inn á skipulag. Það kom í sjálfu sér ekki á óvart, en þó átti ég ekki von á að það yrði einróma. Sem fyrrum íbúi í Villingaholtshreppi, þá hef ég fylgst nokkuð með störfum hinnar nýju sameinuðu sveitarstjórnar.
Vinnubrögð þeirra eru fagleg og upplýsingagjöf til íbúða er góð. Þó svo að Landsvirkjun hafi komið fram með mjög sérstæðum hætti í þessu máli þá hef ég enga ástæðu til að ætla annað en að sveitarstjórnin hafi tekið þessa ákvörðun með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi.
f
Ég er og mun áfram vera á móti Urriðafossvirkjun einfaldlega vegna þess að ég held að hún muni ekki gera líf okkar neitt betra.
Landsvirkjun ætti að einkavæða. Einkafyrirtæki fengi aldrei að haga sér með þeim hætti sem þeir hafa gert . Það virðist vera að ríkið gangi í sumum tilfellum mun harðara fram í ýmsum málum en eðlilegt má telja, samanber þjóðlendukröfurnar.
Landsvirkjun ætti að einkavæða. Einkafyrirtæki fengi aldrei að haga sér með þeim hætti sem þeir hafa gert . Það virðist vera að ríkið gangi í sumum tilfellum mun harðara fram í ýmsum málum en eðlilegt má telja, samanber þjóðlendukröfurnar.
f
Það er hollt og gott að takast á um málefni. Þau átök mega þó aldrei verða til þess að menn persónugeri hlutina og láti það valda illindum eða kljúfi Flóahrepp í fylkingar. Virkjunin er ekki þess virði.
f
SÓL.

1 ummæli:
Mér finnst bara einfaldlega nóg komið af virkjunum í bili. Við þurfum ekki á þessu að halda, það má aðeins hægja á þenslunni og öllu brjálæðinu. Klárum ekki auðlindirnar okkar núna, leyfum komandi kynslóðum að eiga eitthvað til vara -eða bara njóta náttúrunnar. Það liggur ekkert á að klára allt núna.
Kárahnjúkavirkjun var okkur dýr. Ekki bara í peningum talið, lítil arðsemi af virkjuninni, líka hærri vöxtum, hærri afborgunum af húsnæðislánum, heldur líka í ómetanlegu tapi á náttúru, ósætti þjóðarinnar, steingeldu gildismati þar sem peningar og hagvöxtur eru ofar öllu, niðurbroti á aðbúnaði verkafólks og eflingu nútímaþrælahalds á Íslandi, útlendingahatur fer vaxandi osfrv. Þetta var ekki þess virði, og hvernig væri að læra af reynslunni núna. Ekki fleiri virkjanir í bili.
Lóla
Skrifa ummæli