28. júní 2008

Kisa á vaktinni

Ronja er duglegur kisi. Þegar aðrir sofa vært, þá stendur hún oft vaktina inná baðherbergi og er klár til að elta skugga sem myndast á veggnum. Hún tekur starf sitt mjög alvarlega, enda eru þessir skuggar alvarleg ógnun við heimilið.
Ronja gegnir því svipuðu hlutverki og Mirage 2000 flugvélar Frakka sem koma hér öðru hverju og vernda landið fyrir ógn, sem er jafnraunveruleg og skuggarnir á baðherberginu.

N.

19. maí 2008

Helgafell 8. maí

Fyrsta gönguferð VST í sumar var farin í gærkvöldi (8. maí)
Ég var "farastjóri" í ferðinni og af 12 manns sem komu "átti" ég 5. Gengið var af stað kl. 18:30 frá stæðinu við Kaldársel og farið upp á fjallið í skarðinu milli Helgafells og Valahnúka. Nokkuð teygðist úr hópnum á leiðinni upp á topp, en gönguferðin þangað tók á bilinu 60-75 mín.
Veðrið var dásamlegt (sól, logn og hlýtt) og útsýni frábært þannig að við tókum okkur góðan tíma á toppnum.
Ákveðið var að freista þess að finna gatklettinn á niðurleiðinni og tókst okkur að finna réttan stað. Nokkuð bratt er niður af fjallinu á þessum stað og mjög laus jarðvegur þannig að fólk fór sér rólega. Bröltið þarna niður er þó vel þess virði.
Bakaleiðin var svo farin suður fyrir Helgafell, en við vorum ekki komin í bílana fyrr en kl. 22:00. Þar tókum við okkur góðan tíma í sólinni í að gæða okkur á samloku- og súkkulaðiveislunni sem STVST bauð upp á.

Hjólað upp að Elliðavatni

3. maí 2008
Fórum í rosa fína hjólaferð í gær. Lögðum af stað að heiman um hálf fjögur og hjóluðum meðfram Ægissíðunni út í Nauthólsvík þar sem við fundum okkur pínulítið skjól í rokinu og slökuðum á í sólinni. Fórum áfram yfir Hafnarfjarðarveginn og krakkarnir léku sér smá stund í litlum skógi sem er þar rétt hjá (grenndarskógur Hvassaleitisskóla) og svo var haldið áfram með smá leik-stoppi á hjólabrettapalli í Fossvogsdalnum.
Stigum í smá stund af hjólunum utan við leikskólann Læk (gamla leikskólann hans Ólafs Þorra) þar sem við fórum í regngallana, því þá var komin úrhellisriging.
Hjóluðum svo í rigningunni meðfram Elliðaánum upp að Elliðavatni með smá stoppi í nýju Bónus búðinni í Vatnsendahverfinu (klikkuðum aðeins á nestinu fyrir þessa ferð). Fengum okkur vel að borða í skjóli við stífluna og rúlluðum svo aftur heim á leið. Vorum komin heim akkúrat mátulega til að grilla kvöldmatinn. Ef veðrið er betra og meira nesti með í för, er hægt að taka daginn í svona ferð og stoppa á miklu fleiri skemmtilegum stöðum á leiðinni. Mældi þetta á korti og þetta eru samtals um 15 km hvora leið.

9. maí 2008

Kleifarvatn, Krýsuvík, Reykjanestá og Skálafell

1. maí 2008
Fórum í góða ferð í dag.
Byrjuðum á að leita að einnota grilli um allt höfuðborgarsvæðið og fundum loksins eitt í Hafnarfirði. Keyrðum svo upp að Kleifarvatni þar sem við grilluðum pylsur og lágum í mosanum.
Gengum svo um hverasvæðið á Sveifluhálsi. Keyrðum svo til Krýsuvíkur, Gindavíkur alla leið út að Reykjanesvita. Lögðum á bílastæði niðri við sjó og gengum á Valahnjúka. Fórum þaðan niður í Kirkjuvogsbás þar sem við fengum okkur heitt kakó og samlokur. Gengum þaðan meðfram fjörugrjótgarðinum (Valahnjúksmöl) nokkurn spöl þar til við komum að Valbjarnargjá. Þaðan fylgdum við stikunum að vitanum á Reykjanestá. Gengum þaðan yfir hraunið í beina stefnu á Skálafell (sem er einu sinni varla hóll).
Á toppnum er búið að koma fyrir köðlum ofan í gjótur sem þar eru. Nonni fór ofan í annan hellinn og Signý og Óli kíktu ofan í hinn. Borðuðum aftur svolítið nesti á Skálafelli og fórum svo beina leið í átt að Reykjanesvita og upp á Bæjarfell þar sem vitinn er.

23. apríl 2008

Splunkuknýr frændi

Fjölskyldan í Ameríku stækkaði í dag.
Guðbergur Davíð kom í heiminn, 14 merkur og 51 cm.

Við óskum ykkur innilega til hamingju og hlökkum til að fá ykkur heim.

Sjá nánar á http://www.agust.org/

9. apríl 2008

Páskarnir

Það var frábært veður á Akureyri um páskana. Sól og blíðskaparveður alla dagana nema á skírdag. Allir gátu því fundið sér eitthvað skemmtilegt að gera.
Börnin voru önnum kafin við snjóhúsagerð var grafið myndarlegt völundarhús í snjóskafl í Mánahlíðinni.
Það var frábært færi í fjallinu sérstaklega margir á föstudeginum.
Að sjálfsögðu var farið í hinn árlega páskagöngutúr á sunnudeginum sem endaði í Kjarnaskógi.

Hér er hinsvegar myndskeið frá páskagöngutúrnum 2005.
Óli reynir að lyfta steini og Signý upplýsir um prakkarstrik....






Kjarnaskógurinn er fallegur.


9. mars 2008

Samkaupsmótið 2008

Þá er skemmtilegasta körfuboltamóti ársins lokið. Óli og Signý tóku þátt og skemmtu sér mjög vel. Sindri var einnig að keppa fyrir Fjölni og við náðum að fylgjast með leik hjá honum.
Þórdís er orðin einu ári of gömul fyrir þetta mót og fylgdist því með á laugardaginn en skellti sér á bretti í dag með vinkonu sinni. Það gekk mjög vel, nema hún var keyrð niður (af einhverjum sem ekki fór varlega í þokunni) og handleggsbrotnaði (sem betur fer ekki illa) og verður með gips næstu 2-3 vikurnar.
Þetta var semsagt körfubolta og skíðahelgi.
f
f

Signý í baráttu við Njarðvíkurstúlkur.

Lalli að leggja strákunum línurnar í síðasta leiknum gegn Njarðvík.

Það var fallegt veður um helgina.


22. febrúar 2008

Ronja fer Into the Wild

Við fórum á frábæra mynd síðastliðinn Sunnudag í Háskólabíói. Into the wild.
Löng en vel gerð mynd í leikstjórn Sean Penn.
Grandavegurinn gefur 4 stjörnur.
http://www.youtube.com/watch?v=2LAuzT_x8Ek

Ronja er búin að vera týnd í 3 vikur, en fannst í dag eftir að kona í öðru kjördæmi (hinumegin við Hringbrautina) hringdi í okkur. Hún sá auglýsingu sem við höfðum sent á Kattholt (http://www.kattholt.is/).
Við erum öll himinlifandi, því við vorum orðin úrkula vonar með að hún myndi skila sér eftir harðan vetur. Hún á sennilega bara 7 líf eftir.
Etv. er Ronja dálítið eins og Christopher McCandless í Into the Wild. Hún er ung og vill kynnast lífinu án nútímaþæginda og lagði af stað í ferðalag.....
Eða að hún villtist og rataði ekki aftur heim.

SÓL.

14. janúar 2008

Áramótin

Áramótin voru með hefðbundnu sniði hjá Grandaveginum. Akureyri er besti staður í heimi um þennan tíma.

Góður matur, snjór, snjóbretti, krulla, meiri góður matur, lestur, bíómyndir, göngutúrar, spil, rakettur og áramótabúðingur.

Það er nauðsynlegt að vera vel útbúinn í fjallinu.

Kyndla vora hefjum hátt....


30. desember 2007

Jólabækurnar í ár

Byrjaði að lesa Sköpunarsögur eftir Pétur Blöndal í gær. Er búin að lesa um Guðrúnu Evu og Sjón. Næst er Einar Kárason. Mér líst mjög vel bókina og hlakka til að lesa meira.
Ég man vel líka eftir höfundinum - ég sem annars man yfirleitt ekki eftir fólki.
Hann var að vinna í Garðræktinni eitt sumar, eða allavega einn dag.... man bara eftir honum einn dag, en man það rosa vel. Vorum einhver hópur inni í bíl á leiðinni í sláttuverkefni þegar hann fræðir okkur um það að Michelle Pfeiffer sé fallegasta kona sem hann hafi nokkurntímann séð. Að hann sé rosalega hrifinn af henni. Einhverjir fleiri en ég hafa líklega ekki alveg komið henni fyrir sig því að bílstjórinn ákvað að gera stuttan stopp fyrir framan Borgarbíó þar sem verið var að sýna Tequila Sunrise. Þar sýndi Pétur okkur hvað Michelle Pfeiffer var rosalega falleg.

Mér fannst þetta svakalega merkilegt. Um kvöldið sagði ég Pabba og Mömmu frá þessum vinnufélaga mínum sem fannst Michelle Pfeiffer fallegust í heimi. Þeim fannst þetta ekkert merkilegt en sögðu mér að Halldór Blöndal væri pabbi hans.
.
Við Nonni erum líka búin að lesa Hníf Abrahams. Þetta er mjög spennandi bók, en hún skilur lítið eftir sig hjá mér annað en að nú er ég með þetta stöðugt á heilanum:
Faðir Abraham og hans synir
og hans synir - Faðir Abraham.
Og þeir átu kjöt, og þeir drukku öl
og þeir skemmtu sér mjög vel.
Hægri hönd, vinstri hönd
Hægri fótur, vinstri fótur
og höfuðið með
Faðir Abraham ....
Þar sem Nonni náði hnífi Abrahams á undan mér las ég "Einu sinni var dramadrottning í ríki sínu" á jólanótt. Mér fannst fyrri bókin betri.

24. desember 2007

Gleðileg Jól




Grandavegurinn óskar hinum fjölmörgu lesendum sínum, nær og fjær, til sjávar og sveita, gleðilegra jóla og gæfuríks nýs árs.


11. desember 2007

Krulluliðið á Evrópumótinu

Þessi föngulegi hópur kom heim af Evrópumótinu í krullu á sunnudaginn. Árangurinn í mótinu var kannski ekki alveg eins góður og bjartsýnustu menn höfðu vonast eftir. Liðið lék 6 leiki og tapaði þeim öllum, en þeir náðu samt aðeins að bíta frá sér í nokkrum leikjanna þrátt fyrir töpin.
Velkominn heim aftur Pabbi/Afi - við erum mjög montin af "landsliðsþjálfaranum" okkar.

9. desember 2007

Spurning dagsins


Hvaða plötur eru teiknaðar á stúlkurnar ?

7. desember 2007

Gömul mynd

Þessi mynd var tekin daginn sem systurnar fór á Gullborg fysta skiptið, nýlega tveggja og tæplega fjögurra ára.

5. desember 2007

Grænland 2005

Það var í maí 2005 sem við Þórbergur bróðir fórum í skíða- og snjóbrettaferð til Grænlands.
.
Á þessum tíma vann ég með Hallgrími Magnússyni hjá verktakafyrirtækinu Eykt. Hann sagði mér frá fyrirhugaðri ferð til Scoresbysund sem er á austurströnd Grænlands. Ég varð strax spenntur fyrir því að fara og nefndi þetta við litla bróður sem var fljótur að slá til. Þetta var 13 manna hópur, vant fjallgöngu- og skíðafólk, klifrarar og Everestfarar. Allir nema við Þórbergur voru vanir vetrarferðum. Það var því ekki laust við að ég væri stressaður yfir ferðinni, sérstaklega í ljósi þess að ég er mun slakari brettamaður en Þórbergur. Hann hafði í nokkur ár verið að kenna mér á bretti og reglulega reynt að fá mig í hin ýmsu stökk sem yfirleitt enduðu með blóðnösum og skrámum. Eftir því sem ég varð eldri, því hræddari varð ég við að gera eitthvað annað en að komast bara niður brekkuna.
.
Eftir innkaup og undirbúning, var loks lagt af stað 7. maí. Flogið var frá Reykjavík til Constable Point, sem er einangraðasti flugvöllur landsins við Scoresbysund. Völlurinn er 45 km frá bænum Ittoqqortoormiit en þangað fórum við með þyrlu. Ittoqqortoormiit er nyrsti bær Grænlands á austurströndinni. Bærinn var „búinn til“ af Dönum, til að styrkja stöðu þeirra gagnvart landakröfum Norðmanna. Árið 1925 var fólk flutt á svæðið, sumir viljugir aðrir óviljugir og þorpið stofnað. Þarna eru stundaðar veiðar og lítilsháttar ferðamennska, en flestir eru atvinnulausir og þiggja bætur frá Danmörku.
Við stoppuðum ekki lengi í þorpinu. Búið var að panta vistir sem voru tilbúnar á staðnum. Þeim var ásamt öðrum farangri komið fyrir á hundasleðum og svo var lagt af stað upp á jökul, á svæði sem heitir Liverpool land. Ferðin gekk vel, þar til brattinn varð meiri. Þá gátu hundarnir ekki lengur dregið bæði fólk og vistir og því var ekki annað að gera en að hjálpa til að ýta. Eftir um 3-4 tíma ferð voru við loks komin og var slegið upp búðum. Sett var upp eitt matartjald, en gist var í tveggja manna tjöldum.
.
Á jöklinum dvöldum við í 5 daga. Farnar voru dagsferðir í nærliggjandi fjöll sem nóg var af. Flestir voru á telemark skíðum, sem svipar til gönguskíða, að því leiti til að menn eru lausir um hælinn. Þegar gengið er upp, þá eru sett skinn á skíðin til að renna ekki afturábak. Það er þó nokkur kúnst að renna sér niður á telemark skíðum og mun meiri þjálfun en með hefðbundnum svigskíðum. Við fjögur sem vorum á snjóbrettum gengum hinsvegar á snjóþrúgum þegar leiðin lá upp í móti. Það þurfti að hafa talsvert af útbúnaði með sér í dagsferðirnar. Auk fatnaðar og matar yfir daginn, þurfti að hafa mannbrodda, skóflu, snjóflóðaýlu og ísexi. Jafnvægið var því öðruvísi en vanalega þegar maður rennir sér frír og frjáls í Bláfjöllunum.
.
Fyrsta ferðin byrjaði ekki vel. Ég hafði tekið snjóbretti konunnar með, þar sem það er betra að vera með aðeins styttra bretti í bröttum brekkum. Það var talsverð þoka og í lok brekkunnar lenti ég á steini og slæm sprunga kom í brettið. Sem betur fer var einn svo forsjáll að taka með epoxy lím þannig að brettið var lagfært um kvöldið. Góð stemmning var í hópnum og á kvöldin voru sagðar sögur og borðað. Maturinn var mjög góður, en mikið fór af feitmeti og smjöri í kuldanum. Næturnar voru sérstaklega kaldar og þá kom sér vel að hafa góða dúnpoka.
Við hrepptum alls kyns veður í ferðinni. Fyrstu tvo dagana var þungbúið, en svo létti til og gerði sól og blíðu. Seinustu tvo dagana byrjaði að blása og síðustu nóttina gerði talsvert rok. Þá myndaðist sérstakt veðurfyrirbrigði, þannig að það gerði miklar rokhviður, sem vörðu í 2-3 mínútur, en datt í dúnalok á milli. Þegar við vöknuðum um morguninn var stóra matartjaldið fokið niður. Það var lagfært í snarheitum, þannig að hægt væri að matast áður en haldið væri heim.
.
Um miðjan dag, komu svo piltarnir aftur sem lóðsuðu okkur uppá jökul. Allur farangurinn var nú settur á sleðana, en nú var auðveldara að renna sér niður. Um kvöldið vorum við boðin í mat hjá dönskum manni sem rekur veðurstöðina á staðnum. Þar fengum við meðal annars ísbjarnarkjöt og selskjöt. Um kvöldið skellti hópurinn sér svo á eina skemmtistað þorpsins. Það var mjög sérstætt, en allir skemmtu sér þar saman frá unglingum upp í fólk á níræðisaldri.
Daginn eftir vaknaði hópurinn í misgóðu ástandi, en allir ánægðir með góða ferð. Danski þyrluflugmaðurinn ákvað að taka sérstaka ferð á heimleiðinni gegnum eitt gilið, sem reyndi verulega á magann í þeim sem voru í slæmu ástandi eftir gleði næturinnar. Eftir bið á Constable Point var loks sest upp í Fokkerinn sem flutti okkur heim. Góð ferð með fyrirheitum um að fara aftur aðra slíka.
.
SÓL.

Pistillinn birtist í fréttabréfi Velvakanda desember 2007 http://www.thjorsarver.is/Ungmennaf/

Flasningar

Eru þessa flasningar í lagi ?

1. desember 2007

Frakkland 2007

Við fórum í frábært sumarfrí til Frakklands síðastliðið sumar.
Hér eru myndir frá ströndinni sem var við Piriac Sur Mer.

Sindri að búa til kastala.

Signý að skola fæturna.

26. nóvember 2007

Urriðafossvirkjun


Ég hef alltaf verið mikill virkjanasinni. Verið ánægður með allar þær vatnsaflsvirkjanir sem byggðar hafa verið á hálendinu undanfarna áratugi. Sumarið 2005, fórum við fjölskyldan í ferðalag austur að Kárahnjúkum til að skoða stífluna sem þá var í byggingu. Þá þegar hafði ég verulegar efasemdir um að virkjunin væri það mikilvæg að fórna bæri þessari náttúru sem færi undir lón. Við byrjuðum á að stansa í upplýsingamiðstöð virkjunarinnar í Végarði, en þar var mjög gott yfirlitskort af svæðinu í þrívídd. Börnin fengu litabækur og blöðrur og voru algerlega sannfærð um nauðsyn þess að fá virkjun á þennan stað.
Það er bannað að merkja textann !
Áfram var haldið og það var sérlega gott veður þegar við komum á útsýnisstað virkjunarinnar, á Sandfelli. Þaðan sást vel yfir framkvæmdarsvæðið og góðar skýringarmyndir blöstu við. Smíði stíflunar var langt komin en Jökulsá á Dal rann enn óhindruð sína leið.
Neðar við ána, höfðu mótmælendur komið sér fyrir. Við gengum til þeirra og fengum útskýringar og bæklinga, þar sem þeirra sýn á málið kom fram. Tjaldbúðir þeirra voru á einstaklega fallegum stað uppi í hlíðinni gegnt Sauðárfossi. Þegar við útskýrðum fyrir börnunum að allt það svæði þar sem við stóðum á, myndi fara á kaf, þá rann á þau tvær grímur.
f
Það sem fyrir augu okkar bar var í engu samræmi við það sem Landsvirkjun hafði haldið fram. Svæðið var meira og minna gróið og sérlega fallegt. Vissulega má segja að vitneskjan um að svæðið myndi hverfa, hafi gert það á einhvern hátt dýrmætara og sérstæðara. Ég sannfærðist á þessum stað um að þetta væri ekki þess virði. Sumir myndu eflaust segja að þetta væri einfaldlega barnalegt og má vera að það sé rétt. Þetta voru engu að síður mín viðbrögð. Þessu landi mátti ekki fórna fyrir þau megavött sem voru í boði, fyrir það álver sem átti að rísa, fyrir þann gífurlega hagvöxt sem við landsmenn myndu fá, fyrir þá auknu hamingju sem þessi virkjun átti að færa okkur. Eða hvað ?
f
Langt er síðan hugmyndir um Urriðafossvirkjun komu fram og má segja að virkjunin sé eðlilegt framhald af þeim virkjunum sem eru ofar í ánni. Með Holta-, Hvamms og Urriðafossvirkjunum má segja að Þjórsáin sé nánast orðin fullvirkjuð. Sem kunnugt er þá hafa þó nokkrar deilur staðið um þessar virkjanir. Ég hef verið einlæglega á móti Urriðafossvirkjun, bæði vegna þess að með henni hverfur fossinn, en einnig vegna þeirrar áhættu sem hún hefur í för með sér. Fjölmargt fleira mætti tína til sem ókosti, en ekki verður farið nánar útí það hér.
f
Nú hefur verið kynnt ófullgert áhættumat fyrir virkjunina. Ljóst er að áhættan af stíflurofi er mun minni en menn gerðu sér í hugarlund. Þetta eru góðar fréttir fyrir virkjunarsinna og ættu einnig að vera góðar fréttir fyrir þá sem ekki vilja virkja. Það er hinsvegar svo að í því stríði sem nú er háð um Urriðafossvirkjun, þá er allt notað og erfitt að átta sig á hvað er rétt og rangt.
Ég sagði ekki merkja textann....
Sveitastjórn Flóahrepps hefur nú samþykkt að setja virkjunina inn á skipulag. Það kom í sjálfu sér ekki á óvart, en þó átti ég ekki von á að það yrði einróma. Sem fyrrum íbúi í Villingaholtshreppi, þá hef ég fylgst nokkuð með störfum hinnar nýju sameinuðu sveitarstjórnar.
Vinnubrögð þeirra eru fagleg og upplýsingagjöf til íbúða er góð. Þó svo að Landsvirkjun hafi komið fram með mjög sérstæðum hætti í þessu máli þá hef ég enga ástæðu til að ætla annað en að sveitarstjórnin hafi tekið þessa ákvörðun með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi.
f
Ég er og mun áfram vera á móti Urriðafossvirkjun einfaldlega vegna þess að ég held að hún muni ekki gera líf okkar neitt betra.
Landsvirkjun ætti að einkavæða. Einkafyrirtæki fengi aldrei að haga sér með þeim hætti sem þeir hafa gert . Það virðist vera að ríkið gangi í sumum tilfellum mun harðara fram í ýmsum málum en eðlilegt má telja, samanber þjóðlendukröfurnar.
f
Það er hollt og gott að takast á um málefni. Þau átök mega þó aldrei verða til þess að menn persónugeri hlutina og láti það valda illindum eða kljúfi Flóahrepp í fylkingar. Virkjunin er ekki þess virði.
f
SÓL.

21. nóvember 2007

Silfurverðlaun í boðhlaupi

Miðvikudaginn 24. október fór fram Grunnskólamót Reykjavíkur í frjálsum íþróttum fyrir 5. bekk. Keppt var í 60m hlaupi, 600m hlaupi, langstökki, kúluvarpi og 5x60m boðhlaupi. Signý og vinkonur hennar drifu sig á mótið, og þær sáu ekki eftir því þar sem mótið var hið skemmtilegasta og uppskeran góð.
Signý var í frækinni boðhlaupssveit Grandaskóla sem fékk silfrið.

Lið Grandaskóla náði 2. sæti í stigakeppni grunnskólamótsins.

16. nóvember 2007

Í tilefni af degi íslenskrar tungu og 200 ára afmæli Jónasar þá finnst mér þetta við hæfi

Ég er því miður ekki ennþá komin með nægan þroska til að kunna almennilega að meta kveðskap Jónasar, en ég hef hins vegar, eins og Amma, afskaplega gaman af þessari sögu.

Þegar drottningin á Englandi fór í orlof sitt