Áramótin
Áramótin voru með hefðbundnu sniði hjá Grandaveginum. Akureyri er besti staður í heimi um þennan tíma.
Það er nauðsynlegt að vera vel útbúinn í fjallinu.
Kyndla vora hefjum hátt....
Fréttir fyrir vini og vandamenn. Uppfærðar MJÖG sjaldan
Áramótin voru með hefðbundnu sniði hjá Grandaveginum. Akureyri er besti staður í heimi um þennan tíma.
Það er nauðsynlegt að vera vel útbúinn í fjallinu.
Kyndla vora hefjum hátt....
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
21:52
3
að tjá sig
Byrjaði að lesa Sköpunarsögur eftir Pétur Blöndal í gær. Er búin að lesa um Guðrúnu Evu og Sjón. Næst er Einar Kárason. Mér líst mjög vel bókina og hlakka til að lesa meira.
Ég man vel líka eftir höfundinum - ég sem annars man yfirleitt ekki eftir fólki.
Hann var að vinna í Garðræktinni eitt sumar, eða allavega einn dag.... man bara eftir honum einn dag, en man það rosa vel. Vorum einhver hópur inni í bíl á leiðinni í sláttuverkefni þegar hann fræðir okkur um það að Michelle Pfeiffer sé fallegasta kona sem hann hafi nokkurntímann séð. Að hann sé rosalega hrifinn af henni. Einhverjir fleiri en ég hafa líklega ekki alveg komið henni fyrir sig því að bílstjórinn ákvað að gera stuttan stopp fyrir framan Borgarbíó þar sem verið var að sýna Tequila Sunrise. Þar sýndi Pétur okkur hvað Michelle Pfeiffer var rosalega falleg.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
11:20
1 að tjá sig
Þessi föngulegi hópur kom heim af Evrópumótinu í krullu á sunnudaginn. Árangurinn í mótinu var kannski ekki alveg eins góður og bjartsýnustu menn höfðu vonast eftir. Liðið lék 6 leiki og tapaði þeim öllum, en þeir náðu samt aðeins að bíta frá sér í nokkrum leikjanna þrátt fyrir töpin.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
16:04
2
að tjá sig
Þessi mynd var tekin daginn sem systurnar fór á Gullborg fysta skiptið, nýlega tveggja og tæplega fjögurra ára.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
14:46
4
að tjá sig
Pistillinn birtist í fréttabréfi Velvakanda desember 2007 http://www.thjorsarver.is/Ungmennaf/
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
22:19
2
að tjá sig
Sindri að búa til kastala.
Signý að skola fæturna.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
21:33
1 að tjá sig
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
20:51
1 að tjá sig
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
11:10
1 að tjá sig
Ég er því miður ekki ennþá komin með nægan þroska til að kunna almennilega að meta kveðskap Jónasar, en ég hef hins vegar, eins og Amma, afskaplega gaman af þessari sögu. 
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:12
2
að tjá sig
Þó það sé nú alls ekki meiningin að þetta sé eitthvert voðalegt bókablogg þá bara verð ég að koma þessu að.
Mikið öfundaði ég Lólu af þessum bókum.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
10:45
0
að tjá sig
Fann þessa mynd af Signýju á netinu hjá Ægisbúum, en hún er tekin í vígsluútilegunni í byrjun október.
Skátaútilega númer tvö var núna um síðustu helgi. Næst á dagskránni hjá sveitinni hennar, sem heitir Hafmeyjar, er Sovét í skátaheimilinu einhverja nótt í desember.
Fyrir þá sem ekki skilja skátalingó: Hint: Það er mikið étið og eitthvað sofið í Sovétinu.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:52
1 að tjá sig
Myndin er tekin sumarið 2006 í TerraMítica
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:34
5
að tjá sig
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:51
1 að tjá sig
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
09:12
0
að tjá sig
Á sunnudeginum fór Signý svo í Garðabæinn og keppti þar með strákunum og enduðu þau í eftsta sæti A-riðils. Mikil sigurhelgi hjá okkar dömu.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
09:01
0
að tjá sig
Höfum verið að lesa Jósefínubækurnar eftir Maríu Gripe undanfarið. Hef lesið svona kafla og kafla fyrir krakkana á kvöldin en svo tókum við þetta af meiri krafti í vetrarfríinu og kúrðum okkur uppi í rúmi á morgnana og lásum nokkra kafla í einu.
Mæli með að allir rifji upp þessar bækur með börnunum sínum (eða án þeirra - þær standa sko líka alveg fyrir sínu í fullorðinsheiminum).
Maria Gripe, sem er nýlega látin, skrifaði 36 bækur sem voru þýddar á fjölmörg tungumál og er talin með afkastamestu rithöfundum Svíþjóðar. Ætli ég fái ekki Elvis bækurnar lánaðar á bókasafninu næst til að lesa.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:45
2
að tjá sig
Vetrarfríið á Grandaveginum var óvenjulega ljúft í ár - ástæðan er náttúrulega sú að í fyrsta skipti í sögu vetrarfríanna gáfum við skít í vinnuna og tókum frí með krökkunum.
Við byrjuðum fríið á að fara norður í sæluna í Mánahlíð. Þar voru dýrindis máltíðir á hverjum degi og öll aðstaða eins og á fimm stjörnu hóteli (krakkarnir dreifðu meira að segja svo vel úr sér um húsið að þau voru öll í sérherbergjum ...) og Stefán frændi bjó til snjókall með systkinunum og spilaði við þau bæði Íslandsspilið og ægilega skemmtilegt leir-spil sem við keyptum.
Við fórum líka í leikhús og sáum Óvita.
Við gefum leikritinu okkar allra bestu dóma. Krakkarnir skemmtu sér vel og mamman var í "sjokki" út af beittri ádeilunni - man ekki eftir að ádeilan hafi verið svona beitt í gamladaga þegar ég las bókina og sá leikritið í sjónvarpinu - en það er auðvitað af því að nú er verið að deila á mig .... Guðrún Helgadóttir er náttúrulega snillingur, nýja tónlistin er vel heppnuð og leikararnir stórir og smáir standa sig með miklum sóma.
Skrifaði
Grandavegur
klukkan
13:27
0
að tjá sig